<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:14:19" skst="DMK" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:28:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:14:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Forseti Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga ársins 2027. Líkt og venjubundið er
    þá felur frumvarpið í sér margs konar breytingar á lögum í samræmi við
    forsendur fjárlagafrumvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Efnisatriði frumvarpsins eru fjölbreytt og hafa bæði áhrif á
    tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Að hluta til voru sum
    efnisatriði þessa frumvarps líka rædd 1. umræðu um fjárlagafrumvarpið
    fyrir helgina. Ég mun því aðeins stikla á stóru en vísa að öðru leyti til
    þess sem fram kemur í ítarlegri greinargerð með þessi frumvarpi og eftir
    atvikum fjárlagafrumvarpinu sjálfu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst vil ég nefna að í frumvarpinu eru tillögur um að
    krónutöluskattar hækki um 5,2% í samræmi við verðlagsforsendur
    fjárlagafrumvarpsins. Hækkunin nær til gjalda vegna áfengis, tóbaks og
    nikótíns, kolefnis og bifreiða, gistinátta og innviða, Framkvæmdasjóðs
    aldraðra, Ríkisútvarpsins og loks nær hækkunin til kílómetragjalds á
    ökutæki. Að auki hækkar kílómetragjaldið um 4 milljarða en það er
    mikilvægt skref að því markmiði að styrkja tekjustofna af ökutækjum og
    eldsneyti. Ríkisstjórnir síðustu ára hafa sett sér þetta markmið og því er
    þessi ríkisstjórn sammála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Áætlað er að þessar breytingar sem ég hef nefnt skili ríkissjóði
    samtals um 10,5 milljörðum. Þar af nemur hækkun útvarpsgjalds og gjalds í
    Framkvæmdasjóð aldraðra samtals 600 millj. kr. en þau tvenn gjöld hafa
    ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Að öðru leyti eru áhrif hinna
    breytinganna til hækkunar á vísitölu neysluverðs áætluð 0,28%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lagt er til að gjöld vegna Fjármálaeftirlits og
    skilavalds Seðlabankans taki breytingum, að mestu leyti til hækkunar í
    takt við verðlagsþróun. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur
    Seðlabankans. Gjöldin eru ýmist ákvörðuð sem hlutfall af eignum eða tekjum
    eftirlitsskyldra aðila eða föst fjárhæð. Áætlað eftirlitsgjald vegna
    fjármögnunar Fjármálaeftirlitsins er 3.541 millj. kr. Áætlað gjald vegna
    fjármögnunar skilavalds er 105 millj. kr. Gjaldhlutföll eru ýmist óbreytt
    eða lækka fyrir utan gjaldhlutfall þeirra sem stunda
    vátryggingamiðlun.</ns:mgr>

    <!--segir 106 millj. kr. en í frv. og innsendri ræðu er 105 millj. kr./st.-->

    <ns:mgr>Lögð er til hækkun á gjaldhlutfalli af álagningarstofni samkvæmt
    lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lögð er til 5,2% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð
    aldraðra. Samkvæmt því verður gjaldið 15.374 kr. á hvern gjaldanda við
    álagningu opinberra gjalda á árinu 2027 vegna tekna ársins 2026. Áætlað er
    að hækkunin skili ríkissjóði um 200 millj. kr. Jafnframt er lögð til
    breyting á fyrirkomulagi sjóðsins þannig að í stað þess að veita framlög í
    formi styrkja til rekstraraðila hjúkrunarheimila til að standa undir
    viðhaldi og endurbótum á fasteignum hjúkrunarheimila mun sjóðurinn standa
    undir leigugreiðslum á fasteignum sem nýttar eru undir rekstur
    hjúkrunarheimila.</ns:mgr>

    <!--segir 15.371 kr. en í frv. er 15.374 kr. og í innsendri ræðu/st.-->

    <ns:mgr>Forseti. Lagt er til að fjárhæð sóknargjalds verði fastsett með
    hliðsjón af framkvæmd fyrri ára og að auki verði kveðið á um breytingu
    gjaldsins hvert ár í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga.
    Þannig verði tryggður fyrirsjáanleiki og stöðugleiki í fjármögnun
    sóknargjalda. Fjárhæð sóknargjalds hækkar úr 1.221 kr. á mánuði fyrir
    hvern skráðan einstakling árið 2026 í 1.270 kr. á mánuði árið
    2027.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Gert er ráð fyrir að fjárhæð losunargjalds vegna hvers
    tonns gjaldskyldrar losunar, verði hækkað úr 10.123 kr. í 11.035 kr. til
    samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska
    efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður.
    Jafnframt er lagt til að hluti þeirra lækkana úrvinnslugjalds sem tóku
    gildi 1. janúar 2025 gangi til baka, ýmist að hluta eða öllu leyti, þar
    sem þá voru ekki fyrirséðar verulegar hækkanir á endurgjaldi til
    þjónustuaðila í tilteknum vöruflokkum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í frumvarpinu er lögð til framlenging á ákvæðum til
    bráðabirgða við lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi
    starfsendurhæfingarsjóða og lög um tryggingagjald. Ákvæðið kveður á um að
    starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á
    árinu 2027. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildi frá árinu 2013. Eftir
    sem áður er gert ráð fyrir óbreyttri fjármögnun frá atvinnurekendum og
    lífeyrissjóðum, eða 0,10%. Gert er ráð fyrir því að breyta samkomulagi
    milli fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra
    annars vegar og VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs hins vegar til samræmis og
    að á árinu 2027 fái hann framlag á fjárlögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið að heildarendurskoðun á
    örorkuhluta almannatryggingakerfisins. Gert var ráð fyrir að vinnunni lyki
    á þessu ári, en ljóst er að sú áætlun mun ekki ganga eftir. Af þeim sökum
    þykir tilefni til að leggja að nýju til framlengingu á ákvæði í lögum um
    skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Tillögunni er
    ætlað að tryggja áfram að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga
    til örorkulífeyrisþega leiði ekki til samsvarandi lækkunar á örorkulífeyri
    úr lífeyrissjóðum. Hin tímabundna stöðvun víxlverkunar var síðast
    framlengd til og með 31. desember 2026.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er lagt til til að gildistími ákvæðis í lögum um
    skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða verði
    framlengt um eitt ár eða til og með 31. desember 2027. Með því verður
    lífeyrissjóðum áfram óheimilt á árinu 2027 að láta almennar hækkanir
    greiðslna úr almannatryggingakerfinu til örorkulífeyrisþega hafa áhrif á
    útreikning og fjárhæð örorkulífeyrisgreiðslna til sjóðfélaga. Almennar
    hækkanir greiðslna almannatrygginga verða 7,3% 1. janúar 2027 miðað við
    forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2027. Jafnframt er lagt til að
    gildistími ákvæðis í lögum um tryggingagjald um framlag ríkissjóðs til
    jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða verði framlengdur. Í ákvæðinu felst að
    á árinu 2027 mun framlagið áfram eingöngu renna til lífeyrissjóða með
    þyngstu örorkubyrðina. Gert er ráð fyrir að framlagið verði óbreytt milli
    ára, eða sem nemur 4,9 milljörðum samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir
    árið 2027. Það nemur 0,181% af gjaldstofni tryggingagjalds næstliðins
    árs.</ns:mgr>

    <!--segir 0,182% en í innsendri ræðu og frv. er 0,181%-->

    <ns:mgr>Forseti. Hluti af aðgerðum stjórnvalda til að koma á jafnvægi í
    ríkisfjármálum 2027 er hækkun gjaldhlutfalls sérstaks skatts á
    fjármálafyrirtæki, sem í daglegu tali er kallaður bankaskattur. Gangi
    áform frumvarpsins eftir mun gjaldhlutfallið fara úr 0,145% í 0,254% frá
    og með 1. janúar 2027 á stofn til sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki sem
    er heildarskuldir skattskylds aðila samkvæmt lögunum umfram 50 milljarða í
    lok tekjuárs. Áætlað er að hækkunin auki tekjur ríkissjóðs um 6 milljarða
    og að heildartekjur af bankaskatti verði 13,9 milljarðar kr. árið
    2027.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lagt er til að framleiðniviðmið í tekjuskatti verði 0,5%
    næstu fimm staðgreiðsluár, þ.e. staðgreiðsluárin 2027–2031, að undanskildu
    fyrsta staðgreiðsluárinu 2027 þar sem það verður 0%. Næsta endurskoðun á
    mati á framleiðnivexti verður því vegna staðgreiðsluáranna 2032–2036. Gert
    er ráð fyrir því að tekjuáhrif breytinga á framleiðniviðmiði að meðtöldum
    hliðaráhrifum á Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjald verði 3,1
    milljarður á tekjuárinu 2027 en 1,6 milljarðar eftir það og fari vaxandi í
    hlutfalli við tekjuskatt einstaklinga. Jafnframt er lagt til að
    tímabundnar útreikningsreglur barnabóta verði framlengdar um eitt ár sem
    þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á
    árinu 2027 og á árinu 2026. Á þeim forsendum er áætlað að útgjöld vegna
    barnabóta nemi allt að 21 milljarði á árinu 2027 og hafi jákvæð áhrif á
    ráðstöfunartekjur heimila og þá sérstaklega barnafólks og lág- og
    millitekjuhópa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Til að tryggja eðlilegt samræmi í gjaldskrá
    Útlendingastofnunar er lögð til hækkun gjalda fyrir umsóknir um
    skammtímadvalarleyfi samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Gert er ráð
    fyrir því að hækkun gjalda vegna umsókna um skammtímadvalarleyfi muni hafa
    í för með sér einhverja hækkun tekna í ríkissjóð, þrátt fyrir að
    hækkuninni sé einnig ætlað að draga úr tilhæfulausum umsóknum og þar með
    hafa jákvæð áhrif á umsýslu Útlendingastofnunar. Þá er lagt til að heimilt
    verði að fella niður umsóknar gjöld fyrir dvalarleyfi þegar um er að ræða
    Fulbright-styrkþega og nánustu fjölskyldumeðlima hans sem hingað koma á
    vegum Menntastofnunar Íslands og Bandaríkjanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lagt er til að aðgangseyrir að baðhúsum, baðstöðum,
    gufubaðsstofum og heilsulindum sem falla undir lög um virðisaukaskatt beri
    24% skatthlutfall í stað 11% skatthlutfalls virðisaukaskatts. Breytingin
    er liður í áformum um að draga úr mismunun í virðisaukaskattskerfinu, auka
    tekjur ríkissjóðs og styrkja hlutleysi og tekjuskilvirkni
    virðisaukaskattskerfisins. Breytingin hefur jákvæð tekjuáhrif fyrir
    ríkissjóð sem áætla má 4 milljarða árið 2027. Áhrif á verðbólgu gætu orðið
    allt að 0,02% verði hærri virðisaukaskatti velt til fulls inn í verð
    þjónustunnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er lagt til að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna
    vinnu manna við nýbyggingu, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis verði
    lækkað úr 35% í 20%. Tillagan styður við markmiðið um bætta afkomu
    ríkissjóðs. Endurgreiðslan felur í sér frávik frá almennri skattlagningu
    og telst vera skattstyrkur í skilningi laga um opinber fjármál. Lækkun
    endurgreiðsluhlutfallsins hefur áhrif til aukningar á tekjum ríkissjóðs
    sem áætla má 3,6 milljarða á árinu 2027. Áhrif á verðbólgu í janúar 2027
    má áætla að verði um 0,02%. Þrátt fyrir það er aðgerðin til þess fallin að
    draga úr eftirspurnarþrýstingi í hagkerfinu og flýta því að vaxtastig
    lækki og þar með kostnaður til lengri tíma litið við fjármögnun
    nýframkvæmda og viðhalds íbúðarhúsnæðis.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lagt er til að forvarnagjald vegna innviða á Reykjanesi
    sem er innheimt af brunatryggðum húseignum verði framlengt um eitt ár.
    Tekjur af forvarnagjaldinu námu 1,3 milljarði á árinu 2025. Jafnframt er
    lagt til að heimilt verði að selja eða ráðstafa eignum og tekjum
    Húsnæðissjóðs til annarra verkefna en heyra undir Húsnæðis-, mannvirkja-
    og skipulagsstofnun. Skilyrði fyrir slíkri ráðstöfun er að heimildar sé
    fyrst aflað í fjárlögum þar sem ráðstöfunarheimildum vegna eigna ríkisins
    er safnað saman árlega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti Að lokum er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að
    jöfnunargjald raforku og raforkueftirlitsgjald verði hækkað. Fjárhæð
    jöfnunargjalds raforku skal uppfærð 1. janúar ár hvert, á grundvelli
    tillögu frá Umhverfis- og orkustofnun. Tillagan liggur ekki fyrir á
    þessari stundu og er því miðað við 5,2% hækkun jöfnunargjalds í samræmi
    við hækkun vísitölu neysluverðs síðastliðna 12 mánuði. Verði ákvæðið að
    lögum mun hækkun jöfnunargjalds skila 168 millj. kr. í viðbótartekjur árið
    2027. Útgjöld ríkissjóðs hækka að sama skapi þannig að áhrif á afkomu
    ríkissjóðs verða engin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað
    til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>