<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:28:27" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:30:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:28:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu.
    Eins og hæstv. ráðherra nefndi þá er erfitt að ræða þetta algjörlega
    aðskilið frá fjárlögum þannig að umræðan mun örugglega taka mið af því. Ég
    vil spyrja hæstv. ráðherra sömu spurningar og ég spurði hæstv.
    forsætisráðherra vegna þess að ég fékk ekki nein svör. Það er í fyrsta
    lagi af því að bæði Samfylkingin og Viðreisn lofuðu því að hækka ekki
    skatta á venjulegt fólk, og ég tilgreindi það hér í fyrirspurnatíma sem
    hæstv. ráðherra var viðstaddur, hvort sem það er tekjuskatturinn,
    barnabætur, vaxtabætur, bílar, skattarnir og ýmislegt fleira, og mín
    spurning er einfaldlega þessi: Er þetta ekki venjulegt fólk sem greiðir
    þessa skatta? Þetta var mjög skýrt og eftir því tekið þegar þessu var
    lofað fyrir kosningar. Ef þetta er ekki venjulegt fólk, hvaða fólk er
    þetta þá?</ns:mgr>

    <!--***Mig langar að breyta þessu í: en það var gert... en hann botnar þetta ekki og ég botna ekki 100% í honum.-->

    <ns:mgr>Síðan er hitt að nú eru komnar tvær álitsgerðir frá fjármálaráði
    frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Það er ekki ósanngjarnt að segja að
    það hafi ekki verið tekið tillit til þeirra ábendinga. Ég velti því fyrir
    mér, sérstaklega í ljósi þess að við síðustu fjármálaáætlun í
    meirihlutaáliti fjárlaganefndar var ekki einu sinni vikið einu orði að
    álitsgerðinni, hvort það séu einhverjar hugmyndir hjá ríkisstjórninni um
    að leggja af fjármálaráð. Það segir sig sjálft að ef við erum með
    fjármálaráð sem ríkisstjórnin tekur ekki mark á þá er kannski ekki mikið
    við það að gera. En ég skal taka það skýrt fram að ég er algjörlega
    mótfallin því og myndi frekar vilja að ríkisstjórnin myndi taka mið af
    þeirra ábendingum og í það minnsta svara þeim ef þau eru ósammála þessum
    ábendingum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>