<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:30:41" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:32:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:30:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    spurninguna. Það er alveg ljóst að þær tekjuaðgerðir sem ráðist er í í
    þessum bandormi, og svo sem bandormi síðasta árs líka, hafa áhrif á ýmsa
    og í öllum tilfellum held ég að þar sé undir venjulegt fólk sem aðrir. Það
    þarf auðvitað að horfast í augu við það að langvarandi hallarekstur
    ríkisins verður að stöðva og ég hef átt orðastað við hv. þingmann um það
    áður. Þegar Alþingi tekur ákvörðun um að taka hluta af útgjöldum sem það
    vill verja til samfélagsins að láni þá er auðvitað verið að taka ákvörðun
    um það að þjóðin muni greiða þann reikning einhvern tímann. Þess vegna er
    það þannig að þær ákvarðanir sem hafa safnast upp núna á alllöngum tíma,
    sem eru orðnar allnokkrar að umfangi eða um 860 milljarðar, munu falla á
    þessa sömu einstaklinga, hjá því verður ekki komist. Það eru engir aðrir
    tekjustofnar hjá hinu opinbera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi álitsgerð fjármálaráðs, sem hv. þingmanni verður tíðrætt
    um, vil ég nú að vísu alls ekki taka undir að það hafi ekki verið horft
    til hennar. Þvert á móti held ég að þau fjárlög sem nú er verið að leggja
    fram svari að verulegu leyti þeim athugasemdum sem þar komu fram um
    einmitt mikilvægi sjálfbærs reksturs ríkisins og lækkun skulda til lengri
    tíma. Ég get glatt hv. þingmann með því að ekki er nóg með að ég leggi
    mikla áherslu á að fara yfir og fara eftir álitum fjármálaráðs heldur
    hefur stofnanaleg umgjörð fjármálaráðs verið styrkt verulega og það hefur
    verið gert með samningi við Háskóla Íslands sem nú skipar í formann
    ráðsins sem er óháður aðili og yfir allan vafa hafinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>