<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:32:58" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:34:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:32:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ekkert í þessum fjárlögum eða bandormi
    sem bendir til þess að tekið sé tillit til ábendinga fjármálaráðs. Ég vek
    athygli á því að fjármálaáætlunin var ekki einu sinni uppreiknuð núna í
    vor þannig að það er ekki verið að vinna eftir þessu eins og lagt er upp
    með. Núverandi ríkisstjórn á nú dágóðan hluta af þessum 860 milljörðum en
    hæstv. ríkisstjórn vissi af því og þeir forystumenn vissu alveg að hverju
    þeir gengu þegar þeir tóku við búinu. Það liggur alveg fyrir. Þeir geta
    ekki haldið því fram að þeir hafi komið bara með geimskipi og byrjað að
    lofa einhverju og hafi ekki vitað hver staða málsins væri. Á þeim
    forsendum lofuðu þeir ákveðnum hlutum, eins og að hækka ekki skatta á
    venjulegt fólk, en þetta er nú í fyrsta skipti sem ráðherra viðurkennir
    það í ríkisstjórninni að hafa hækkað skatta á venjulegt fólk, þótt allir
    sjái það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra er tíðrætt um fjármagnskostnaðinn. Það hafa komið
    fram tillögur sem allar hafa verið felldar, m.a. um sölu eigna til að
    lækka fjármagnskostnað. Telur hæstv. ráðherra það ekki vera skynsamlegt
    til að lækka vaxtakostnað ríkisins og auka verðmætasköpun í
    þjóðfélaginu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>