<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:34:37" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:35:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:34:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðari spurninguna.
    Ég fór þegar yfir með hvaða hætti hefur verið tekið tillit til athugasemda
    fjármálaráðs. Ég þarf ekki að endurtaka það en ég vil endurtaka það sem ég
    sagði hérna áðan: Í hvert einasta skipti sem þessi stofnun tekur ákvörðun
    um útgjöld sem eru ekki fjármögnuð þá er hún að senda skattareikning inn í
    framtíðina. Þannig er það bara og menn geta snúið sig út úr því eins og
    þeim hentar en þetta er raunveruleikinn, þetta veit öll íslenska
    þjóðin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi sölu eigna þá held ég að þær leiðir séu allrar athygli
    verðar. Það þarf þó að hafa í huga að í einhverjum tilfellum er þar um að
    ræða eignir sem skila umtalsverðum arði og það er alls ekki víst að
    fjármagnskostnaður, alla vega ekki nettó fjármagnskostnaður ríkisins,
    lækki sem neinu nemur. Það fer algerlega eftir því hvort ávöxtun þeirra
    eigna er meiri eða minni en fjármagnskostnaður ríkissjóðs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>