<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:35:52" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:37:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:35:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra er tíðrætt um útgjöld
    síðustu ríkisstjórnar. Ég get tekið undir að þau voru allt of mikil, þó að
    þeim sé ákveðin vorkunn vegna þess sem þau voru að eiga við. Það var
    reyndar einn flokkur sem var ansi duglegur að benda á það og það var ekki
    Viðreisn. Nei, Viðreisn vildi bæta í. Nú er önnur ríkisstjórn og mann er
    farið að lengja eftir því að heyra hvað hún ætlar að gera. Hún er reyndar
    búin að vera að sýna á spilin en afsakar allar gjörðir sínar meira og
    minna með fyrri ríkisstjórnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Finnst
    þér mikill metnaður í því að auka raunútgjöld um 20 milljarða óháð
    hlutfalli af vergri landsframleiðslu? Ég er að tala um að við erum með
    ríkisfjármál þar sem við erum með miklar ríkisskuldir, hæstv.
    fjármálaráðherra er duglegur að minna á það. Þetta er kannski í kringum 1%
    af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Hefðu það ekki verið góð skilaboð að hækka
    ekki útgjöld milli ára og hefðu það ekki verið góð skilaboð líka að hækka
    ekki skatta heldur fara í meira aðhald? Við erum að tala um kannski
    rúmlega 3% af heildarútgjöldum ríkissjóðs, ríkisstjórnin hefði sýnt aðeins
    meira aðhald, bara um rúm 3%, þá hefði ekki þurft að fara í skattahækkanir
    og það hefði ekki þurft að auka útgjöld frá því í fyrra. Hvaða fyrirtæki á
    þessu landi sem væri yfirskuldsett myndi ekki ráðast í milli 3% og 4%
    aðhald?</ns:mgr>

    <!---->

    <ns:mgr>Þetta er algjörlega óboðlegt og því spyr ég: Finnst hæstv.
    ráðherra þetta nógu mikill metnaður?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>