<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:38:04" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:40:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:38:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir
    spurninguna. Nú vil ég halda því til haga að aðhaldið í þessu
    fjárlagafrumvarpi er það mesta sem hefur sést í fjárlagafrumvarpi frá því
    einhvern tímann upp úr hruni. Menn geta auðvitað haft ýmsar skoðanir á því
    hvort það sé nægilegt eða ekki og ég ætla svo sem ekkert að kvarta yfir
    metnaði hv. þingmanns, það er bara gott að hún sé metnaðarfull. Það er
    hins vegar þannig að þessar viðbætur sem hv. þingmaður nefnir snúa að
    útgjöldum í heilbrigðiskerfinu sem að einhverju leyti falla óháð því hvað
    við ákveðum í þessum sal og þarf að gera ráð fyrir, eru hluti af
    vandamálinu sem við hér munum þurfa að takast á við á komandi árum, sem er
    öldrun þjóðarinnar og eðlileg þróun í þá átt að þessir útgjaldaliðir
    hækki, sem þarf að mæta með einhverjum hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi verkefnið vil ég í þessu samhengi bara minna á það og
    biðja hv. þingmenn að skoða söguna og sjá hversu sjaldan ríkissjóður
    Íslands er rekinn réttum megin við núllið, í sárafáum tilfellum frá
    lýðveldisstofnun. Sem betur fer hefur það orðið ríkissjóði til bjargar að
    trekk í trekk hefur honum fallið til viðbótarfjármagn sem hefur rétt úr
    kútnum en það er bókstaflega talið á fingrum annarrar handar hvenær
    Alþingi hefur treyst sér til þess og ríkisstjórnir að skila hallalausum
    fjárlögum. Ég þakka fyrir þann mikla metnað sem hv. þingmaður Nanna
    Margrét Gunnlaugsdóttir hefur fyrir verkefninu en vil bara halda þessu til
    haga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>