<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:40:12" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:41:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:40:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Þakklæti fyrir metnað minn
    kemur heimilum skammt. Ef við komum í ríkisstjórn gætum við gert eitthvað
    en ég gef líka lítið fyrir þetta hallaleysi miðað við verk þessarar
    ríkisstjórnar; 2025 var farið tugi milljarða fram úr, 2026 var mesta
    aukning ríkisútgjalda sem nokkur ríkisstjórn hefur farið í, og hvað? Þau
    eru að bæta enn betur í núna. Þau fela upplýsingar um hvernig skattar eru
    innheimtir. Af hverju? Af því að staðan er ekki nógu góð. Það er gott og
    vel að fá hallaleysi en það var kjörið tækifæri til að ná þessu hallaleysi
    með aðhaldi í ríkisrekstri og þannig hefðum við líka getað náð niður
    vöxtum og verðbólgu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja líka hæstv. ráðherra út í bandorminn: Hvar er
    fyrirsjáanleikinn í öllum þeim skattahækkunum og hvernig stendur
    stöðugleikareglan fyrir árið 2026?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>