<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:41:25" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:42:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:41:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir
    síðari spurninguna en í henni felast ásakanir sem ég tel nokkuð alvarlegar
    og ég tel rétt að fylgt sé eftir, um það að upplýsingum hafi verið haldið
    frá Alþingi. Ég kannast ekki við neitt slíkt. Ég bið hv. þingmann um að
    annaðhvort draga þessa fullyrðingu til baka eða færa rök fyrir því hvernig
    hún kemst að því <ns:frammíkall/>að svo hafi verið gert vegna þess að það
    er alls ekki rétt og myndi aldrei gerast á minni vakt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi síðan það mögulega viðbótaraðhald sem hægt væri að sýna
    þá vil ég aftur vísa til þess sem ég sagði áðan: Þetta er mesta aðhald sem
    sýnt hefur verið í fjárlagafrumvarpi frá því eftir hrun. Fullyrðingar um
    annað eru úr lausu lofti gripnar. Síðan get ég glatt hv. þingmann með því
    að segja honum að samkvæmt stöðugleikareglunni mega ríkisútgjöld, að teknu
    tilliti til tekjuráðstafana, hækka um 2% og að þessu sinni lækka þau um
    1,1%. <ns:frammíkall skst="NMG">2026?</ns:frammíkall>Nei, 2027.
    <ns:frammíkall skst="NMG">Ég er að tala um 2026 …</ns:frammíkall>Þær tölur
    er ég ekki með. <ns:frammíkall>… hlusta betur.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>