<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:43:08" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:45:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:43:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna.
    Ég þakka honum sömuleiðis fyrir samveruna í morgun á fundi SFF þar sem við
    vorum saman í pallborði þar sem mér þótti hæstv. ráðherra heldur hvumpinn,
    verð ég að segja. Skiljanlega kannski þegar maður þarf að tala þvert gegn
    sannfæringu sinni, sem ég efast ekki um að ráðherra þurfi að gera með
    framlagningu þessa bandorms, alla vega ef eitthvað á að marka fyrri orð
    Viðreisnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Gott og vel, við skulum vona að það skíni aftur sól í heiði hjá
    hæstv. ráðherra og við skulum vinda okkur hér að þessu frumvarpi. Mig
    langar að gera að umtalsefni mjög skýr loforð forsvarsmanna
    ríkisstjórnarinnar um að það ætti ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og
    vinnandi fólk. Mjög skýr loforð. Formaður Viðreisnar tók það sérstaklega
    fram að það yrðu engar breytingar gerðar á tekjuskatti. Í bandormi þessum
    er farið bakdyramegin að því að gera nákvæmlega það. Hvernig? Með því að
    gera breytingar á tekjuskattsþrepum þannig, og ég vek athygli á því, að
    hver einn og einasti launamaður í landinu er að borga hærri skatt í öllum
    skattþrepum og í öllum tekjutíundum. Allir á Íslandi eru að fara að borga
    hærri tekjuskatt. Þetta er sérstaklega rökstutt í frumvarpinu um að
    skattbyrði hafi lækkað mest m.a. í neðstu tveimur tekjutíundunum.
    Ráðuneytið er sérstaklega að varpa ljósi á að það þurfi að hækka skattana
    á fólk sem er með 450.000 kr. á mánuði. Ég vek athygli á því að þessi
    skattur á að skila 3 milljörðum. Það hefði verið hægt að sleppa þessu en
    samt skila hinu háheilaga núlli þar sem afgangurinn á að vera hvað? Jú, 5
    milljarðar. Það hefði mátt sleppa þessu en samt skila hallalausum
    fjárlögum. Hvernig má það vera, hæstv. ráðherra, að þvert á mjög skýr
    gefin loforð sé ákveðið að senda þennan reikning til allra launamanna í
    landinu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>