<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:47:40" skst="HildS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:49:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:47:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir
    útskýringuna. Ég er virkilega þakklát. Ég skildi þetta reyndar ágætlega.
    Ég hjó hins vegar eftir því að í útskýringum ráðherrans var hvergi nefnt
    að það átti vissulega að endurskoða þetta, en ekki fyrr en eftir ár.
    Ríkisstjórnin kýs hérna án neinnar sýnilegrar ástæðu nema að klípa enn þá
    meira af hverju einasta heimili í landinu að fara í þessa vegferð.
    Ráðherrann nefndi í engu að það væri verið að flýta því um eitt ár án
    nokkurs sýnilegs rökstuðnings né ástæðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil hins vegar venda kvæði mínu í kross í mínu seinna andsvari
    og nefna skattheimtu á ferðaþjónustuna. Samanlagt er sú skattheimta
    helmingurinn af samanlögðum hagnaði í fyrra, helmingurinn af ótrúlega
    mikilvægri atvinnugrein á Íslandi. Ég velti því fyrir mér, sérstaklega
    þegar við skoðum baðlónin og að það eigi að taka baðlónin úr 11%
    virðisaukaskattshlutfalli yfir í 24%. Ég hef heyrt stjórnarliða nefna að
    það sé eins og að fara í bíó o.s.frv. Það kemur mér spánskt fyrir sjónir
    því að ég geri ráð fyrir að ráðherrann átti sig á því að það skiptir máli
    þegar verið er að horfa á atvinnugrein hvernig samkeppnisstaða er innan
    hennar. Er sanngjarnt að taka baðlónin út fyrir sviga gagnvart annarri
    afþreyingu, ef við getum orðað það sem svo, innan greinarinnar? Er það
    sanngjarnt? Var gerð einhver greining á því hvaða afleiðingar það myndi
    hafa? Auk þess er íslensk ferðaþjónusta í mjög viðkvæmri samkeppni við
    löndin í kringum okkur. Hvar? Ferðaþjónustan er jú alla jafna í lægra
    skattþrepi. Af hverju? Því við erum í samkeppni við önnur lönd.</ns:mgr>

    <!--***Hún segir Hvar ferðaþjónustunnar heyrist mér en mér finnst það ekki passa í samhenginu...-->

    <ns:mgr>Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hann engar áhyggjur af
    þessari stöðu og voru gerðar greiningar, eitthvað áhrifamat á áhrifunum af
    því sem þetta getur valdið?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>