<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:49:58" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:51:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:49:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir síðari
    spurninguna. Nú er á allan hátt óeðlilegt að bera þær tillögur sem eru í
    fjárlagabandormi um gjaldtöku af ferðaþjónustu saman við hagnað
    ferðaþjónustunnar. Ástæðan fyrir því er í sjálfu sér mjög einföld.
    Innviðagjaldið er innheimt beint af ferðamanninum, það er ekki innheimt af
    fyrirtækjunum eða alla vega er það sú hugmynd sem unnið er með í
    atvinnuvegaráðuneytinu sem þýðir að einu áhrifin sem gætu þá komið fram
    eru afleidd áhrif vegna minni eftirspurnar. Sama á í sjálfu sér við um
    breytingu á virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er vörsluskattur og að
    öllum líkindum má reikna með að honum verði velt út í verðlag þessarar
    þjónustu eins og jafnan er um virðisaukaskatt sem þýðir að áhrifin er ekki
    hægt að setja í samhengi við hagnað. Þarna á milli eru engin bein tengsl
    og greiningarnar hafa fyrst og fremst falist í því að skoða þróun á verði
    þessarar vöru og eftirspurn eftir henni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>