<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:51:35" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:54:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:51:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir framsöguna hér áðan, um margt mjög athyglisverð. Það er margt mjög
    athyglisvert sem hefur komið fram í þessari umræðu og andsvörunum hér og
    eitthvað sem ég held að við þurfum klárlega að leggjast yfir í efnahags-
    og viðskiptanefnd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langar hins vegar að ræða við hæstv. ráðherra eru
    þessar krónutöluhækkanir upp á 5,2% sem við erum að sjá hér í þessum
    bandormi. Það sem ég er að velta fyrir mér er einfaldlega að nú segir í
    fjárlagafrumvarpi hæstv. fjármálaráðherra að áætluð verðbólga, og sú
    verðbólga sem við erum að miða við í fjárlögunum fyrir næsta ár, sé 3,6%.
    Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að hún lækki skarpt eftir áramót og verði
    að meðaltali 3,6%. Því velti ég því fyrir mér og langar beinlínis að
    spyrja hæstv. fjármálaráðherra að því: Af hverju sú tala var ekki notuð í
    krónutöluhækkuninni? Hefði ekki verið miklu eðlilegra að nota
    verðbólguvæntingar og spá Seðlabankans fyrir næsta ár heldur en að fara
    langt upp fyrir hana í 5,2%?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við sjáum hvernig markaðurinn brást við. Verðbólguvæntingar fóru
    upp. Þannig að spurningin mín er í raun og veru bara hvort hæstv.
    fjármála- og efnahagsráðherra geti útskýrt fyrir mér, og okkur hér inni,
    af hverju við fórum í 5,2% en ekki 3,6% og hverju það hefði breytt ef við
    hefðum notað töluna 3,6% upp á áhrif á verðbólguvæntingar. Hvað metur
    hæstv. fjármálaráðherra að breytingin hefði verið ef 3,6% hefðu verið
    notuð varðandi væntingar á markaði?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>