<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:54:07" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:57:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:54:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir
    spurningarnar. Við höfum auðvitað ítrekað átt samtal, ég, hv. þingmaður og
    raunar fleiri þingmenn, um áhrif krónutölugjalda á verðbólgu og ákvarðanir
    ríkisins á verðbólgu. Hv. þingmaður veit auðvitað að almennt séð horfa
    seðlabankar í gegnum þessa tölu, þ.e. að breytingar opinberra gjalda hafi
    ekki áhrif á ákvarðanir þeirra og ástæðan er sú að þær velta bara út í
    gegnum kerfið. En ég geri mér hins vegar alveg grein fyrir því að Ísland á
    við svona ákveðinn strúktúrvanda að etja sem felst í útbreiddri notkun
    verðtryggingar sem gerir það að verkum að ýmislegt getur haft áhrif á
    verðbólgu þó að greiningar bæði Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
    sýni að það séu fyrst og fremst sveiflur í gengi og önnur ytri skilyrði
    sem hafa tilhneigingu til að valda verðbólgu á Íslandi, og þá viðvarandi
    verðbólgu. Þá getur alveg verið ástæða til þess í hagstjórnarskyni að
    skoða það hvort eðlilegt sé að koma í veg fyrir raunrýrnun gjaldstofna eða
    ekki. Þetta hefur auðvitað verið til umræðu og það kom fram m.a. í máli
    hæstv. forsætisráðherra núna um helgina að eitt af því sem rætt hefur
    verið við aðila vinnumarkaðarins eru einmitt þessar forsendur. Því samtali
    hefur hins vegar ekki verið lokið. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég myndi almennt séð, til að svara hv. þingmanni, segja: Áhrif
    ákvarðana ríkisins á verðbólguvæntingar, og þá sérstaklega hvað varðar
    krónutölugjöld og annað slíkt, eru ekki eins mikil og hv. þingmenn virðast
    halda. Ég vil í þessu samhengi benda á svokallaða fastskattavísitölu
    Hagstofunnar sem og greiningar á samsetningu hækkunar á vísitölu
    neysluverðs á þessu ári.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>