<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:57:26" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:57:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:57:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra
    kærlega fyrir svarið. Það er ánægjulegt að heyra að bæði fjármála- og
    efnahagsráðherra og forsætisráðherra séu nú svona í orði hér í þingi í dag
    — ég var að spyrja hæstv. forsætisráðherra á svipuðum nótum í óundirbúnum
    fyrirspurnum fyrr í dag að svo virðist sem að það sé ekki loku fyrir það
    skotið að menn séu tilbúnir að draga þessar hækkanir að einhverju leyti
    til baka, sem ég held að sé jákvætt. Ef ég man rétt það sem stendur í
    frumvarpinu þá held ég að við séum að tala um, og það segir svo í
    greinargerðinni, að kílómetragjaldið og krónutöluhækkunin muni hafa áhrif
    á hækkun á vísitölunni sem nemur 0,28%. Þannig að þetta mun að sjálfsögðu
    fara út í verðlagið, það mun hafa áhrif.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er nú bara ánægður með að heyra að menn séu alla vega til
    viðtals um þetta og átti sig kannski á því að menn hafi verið svolítið
    fljótir á sér. Þá er gott að bakka og gera bót og betrun. Ég vona svo
    sannarlega að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sé til í það og sé
    maður að meiru ef hann fer þá vegferð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>