<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:58:01" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:58:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:58:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég heyrði ekki sérstaklega spurningu í síðara andsvari
    hv. þingmanns heldur einungis hvatningu og ég ætla að leyfa mér að taka
    hana til mín. Ég vona að ég fari rétt með þegar ég segi að fyrrum formaður
    Framsóknarflokksins og ráðherra til margra ára, Ólafur Jóhannesson, hafi
    einhvern tímann sagt þegar hann var sakaður um að skipta mikið um skoðun:
    Þegar mér hefur verið sýnt fram á að ég hafi rangt fyrir mér skipti ég um
    skoðun, hvað gerið þér? Svona um það bil, með leyfi forseta. Ég ætla að
    leyfa mér að gera þessi orð Ólafs Jóhannessonar að mínum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>