<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:58:58" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:14:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:58:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með
    þessari umræðu. Það er ekki bara ég sem hef það á tilfinningunni að
    ríkisstjórnin sé búin að gefast upp á þessu verkefni, það er margt sem
    bendir til þess. Ég vísa í óundirbúna fyrirspurnatímann hér áðan og
    sömuleiðis fundinn í morgun, sem við lesum um, hjá Samtökum fyrirtækja í
    fjármálaþjónustu, en líka þessa umræðu hér og svör ráðherrans við
    ágætisspurningum hv. þingmanna. Mér finnst svolítið skrýtið, svo að maður
    grípi nú bara í síðustu orðaskipti, þegar ráðherra talar um að — það er
    alltaf látið að því liggja að öll gjöld sem hækka skipti svo litlu máli.
    Ég ætla þá bara að nota tækifærið, af því að ég hef stundum verið
    gagnrýndur af stjórnarliðum fyrir að vera ekki jákvæður, til að hrósa
    hæstv. ríkisstjórn fyrir það að lækka virðisaukaskattinn á olíuna í vor.
    Hvaða áhrif hafði það? Hélt það ekki aftur af verðbólgunni? Hvernig má það
    vera þegar lækkun skatta og gjalda skiptir aldrei neinu máli? Af hverju
    fór ríkisstjórnin í þá vegferð ef það skipti ekki neinu máli? Ég skil vel
    hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson sem spyr um krónutölugjaldahækkun upp á
    5,2% þegar spáð er 3,6% verðbólgu á sama tíma og forystumenn
    ríkisstjórnarinnar segja hér að það skipti máli að halda aftur af
    verðbólgunni. Ráðherra svaraði því á þann veg að þetta væri svo lítið að
    það skipti engu máli. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir benti hér á, sem hefur
    komið fram hjá mér og öðrum, tekjuskattshækkunina og það skiptir bara ekki
    neinu máli að mati hæstv. ráðherra. Ja, þetta skiptir alla vega því máli
    að tekjur ríkissjóðs af þessari breytingu eru metnar upp á 3
    milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst áhugavert að hlusta hér á afsakanir fyrir
    náttúrupassanum eða innviðagjaldinu. Nú liggur það fyrir að þegar þessar
    hugmyndir komu fyrst fram var verið að bregðast við því að á örskammri
    stundu fylltist allt hér af ferðamönnum. Það hafði þau áhrif að mikið álag
    var á ferðamannastaði og náttúruperlur okkar og við það mátti ekki búa. Þá
    kom þáverandi ráðherra með hugmynd um svokallaðan náttúrupassa en eftir
    umræðu um það var góð samstaða um að falla frá því. Er þessi vandi til
    staðar núna? Það er einn og hálfur áratugur síðan þetta var. Nei, þessi
    vandi er ekki til staðar lengur, hann er löngu búinn. Við erum að
    innheimta í þjónustugjöld 2,2 milljarða í þjóðgörðum og á friðlýstum
    svæðum — þetta hefur aukist gríðarlega á síðustu árum — af ferðamönnum og
    fyrirtækjum sem eru að fara með ferðamenn. Bílastæðagjöld og salernisgjöld
    eru mest áberandi. Það er enginn vandi lengur hvað þetta varðar.
    Innviðagjald upp á 5 milljarða kr. mun bara gera eitt: Það mun gera Ísland
    dýrara. Hver er helsti vandi okkar sem ferðamannalands? Hver er helsti
    vandinn? Jú, Ísland er dýrt. Fólk er ánægt með náttúruna, fólk er ánægt
    með þjónustuna og fólk er ánægt með matinn. Fólk er m.a.s. ánægt með
    veðrið sem einhvern tímann hefði komið manni spánskt fyrir sjónir. En
    fólki finnst landið vera dýrt. Það er reyndar þannig að þau stjórnvöld sem
    nú mynda ríkisstjórn eru að fara í markaðsherferð vegna þess að þau hafa
    áhyggjur af því að ferðamenn ætli að fara til annarra landa en Íslands, í
    markaðsherferð úr opinberum sjóðum. Og hvernig má það vera, þegar við erum
    hér að tala um að bæta í gjöld og þar af leiðandi gera Ísland dýrara —
    hvernig fer það saman við það að menn hafi áhyggjur af því að
    ferðamaðurinn sé að fara til annarra landa en okkar? Að bregðast við því
    með ríkisútgjöldum í formi markaðsátaks — nú er ég ekki að tala það niður,
    en það eru ekki góð skilaboð og þarna fara ekki saman hljóð og mynd. Það
    er verið að reyna að fá fólk til landsins en vandinn er klár; hann er sá
    að Ísland er of dýrt að mati margra ferðamanna. Þá mæta menn því með því
    að fara í auglýsingaherferð á vegum hins opinbera en bæta síðan í
    kostnaðinn, gera Ísland dýrara, með innviðagjöldum upp á 5 milljarða
    kr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í orðaskiptum við hv. þm. Nönnu Margréti
    Gunnlaugsdóttur talaði hæstv. ráðherra, eins og hann gerir stundum, eins
    og hér hafi allt verið í rjúkandi rúst og hér hafi aldrei verið afgangur á
    fjárlögum og þetta sé bara allt hið hræðilegasta mál. Nú liggur það fyrir,
    og fjármálaráð, AGS, Moody´s og reyndar hæstv. fjármálaráðherra sjálfur
    hafa staðfest það, að staða mála var góð þegar kemur að opinberum
    fjármálum þegar þessi ríkisstjórn tók við. Hún fór hins vegar ekki í það,
    sem maður myndi ætla miðað við það hvernig talað er núna, að spara á árinu
    2025 eða 2026 eða 2027; þau gerðu það ekki. Þegar þau nefna hallann — ég
    verð að vísu að viðurkenna að það voru svolítið stór mál, reyndar ein
    stærstu mál sem Ísland hefur þurft að eiga við og þá er ég að vísa í Covid
    og Reykjaneselda og reyndar var fall WOW gríðarlega stórt mál líka. Það
    var ekki gengið í það verk sem þau segjast vera að ganga í núna, þ.e. að
    reyna að ná endum saman. Það hefði verið hægur vandi ef farið hefði verið
    í það verkefni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vek athygli á því að það er til nokkuð sem heitir fjármálaráð
    sem nú hefur tvisvar lagt fram álitsgerð. Hæstv. ráðherra segir að tekið
    hafi verið tillit til þeirra. Ég segi, vegna þess að það er staðreynd: Það
    er ekki rétt hjá hæstv. ráðherra. Við getum alveg skoðað það þegar við
    skoðum þessar álitsgerðir. Það er talað um að skuldir haldi áfram að
    aukast þótt skuldahlutfall lækki, enda sé lánsfjárjöfnuður neikvæður út
    allt áætlunartímabilið og áætlaður viðsnúningur byggist að stórum hluta á
    þáttum sem stjórnvöld hafi ekki beina stjórn á. Útfærsla hagræðingar,
    fækkun ríkisstarfsmanna og ný stöðugleikaregla sé ekki nægilega skýr.
    Breytt framsetning útgjalda og óbirtar lykilforsendur torveldi sjálfstætt
    eftirlit. Þó svo að fjármálaráð hafi stutt markmið um hallalaus fjárlög þá
    segir það að hallalaus fjárlög séu bókhaldslegt markmið en segi ekki ein
    og sér hvort ríkisfjármálin dragi úr eftirspurn og verðbólgu. Við erum
    líka að tala um það, virðulegi forseti, að framleiðnivöxturinn hafi verið
    illa rökstuddur, verðbólga og vextir óviss. Sömuleiðis var talað um ógn
    við sjálfbærni og forsendubrest gagnvart útgjaldaþaki. Þetta eru allt
    saman þættir sem fjármálaráð benti á og ekkert hefur verið gert
    með.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla líka að vekja athygli á því að nú koma forystumenn
    ríkisstjórnarinnar eins og þeir hafi bara komið úr geimskipi, séu bara
    einhvern veginn að taka við verkefni sem þeir vissu ekki neitt um. Þetta
    er fólk sem var í stjórnarandstöðu, flokkar sem voru í stjórnarandstöðu, á
    síðasta kjörtímabili. Forystumenn þeirra eru búnir að vera í flokkum —
    Samfylkingin á rætur allt til ársins 1916 ef út í það er farið. Þetta er
    ekki nýtt fólk á vettvangi með sína fulltrúa og reyndar var
    forsætisráðherra í hv. fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili. Þau vissu
    nákvæmlega að hverju þau voru að ganga. En það er samt sem áður þannig að
    þau komu fram fyrir síðustu kosningar og lofuðu því að hækka ekki skatta á
    venjulegt fólk, lofuðu því að hækka ekki skatta á vinnandi fólk, og eru
    núna að kenna síðustu ríkisstjórn um að þau hafi hækkað skatta, bæði
    tekjuskatt — ætli sú tekjuskattshækkun sé ekki 6 milljarðar þegar allt er
    saman tekið. Það er milljarður sem kemur úr því að rýra barnabætur og
    tæplega milljarður úr því að fella niður vaxtabætur, allt mál sem þau hafa
    talað fyrir, ekki bara fyrir kosningar heldur allt síðasta kjörtímabil.
    Síðan geta menn auðvitað farið í atriði eins og það að endurgreiðslur á
    virðisaukaskatti munu ekki hjálpa neinum að eignast húsnæði, svo mikið er
    víst; að lækka endurgreiðslur á virðisaukaskatti á byggingarstað og í
    viðhaldi. Leiguskatturinn mun ekki hjálpa því fólki sem er að leigja og
    bílaskattarnir munu svo sannarlega ekki hjálpa fólki. Lunginn af
    Íslendingum þarf á bíl að halda og þetta mun ekki hjálpa þessu venjulega
    fólki; þetta mun ekki hjálpa hinum vinnandi manni, þetta mun ekki hjálpa
    þessum venjulegu barnafjölskyldum. Þetta mun ekki hjálpa venjulegu fólki
    sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið, ekki hjálpa þessu venjulega
    fólki sem er að leigja og ekki hjálpa þessu venjulega fólki sem keyrir
    bíl. Þetta mun bara ekki hjálpa því. Þetta eru skattar á venjulegt fólk,
    þetta eru skattar á vinnandi fólk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan eru auðvitað líka breytingar sem fóru mikið undir radar og
    reglugerðin um stærstu breytinguna tók gildi 1. september síðastliðinn.
    Við munum kannski að tveimur dögum áður var þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB.
    Skyldi það vera tilviljun að þessi reglugerðarbreyting hafi komið tveimur
    dögum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna? Spyr sá sem ekki veit. Auðvitað
    verður þessi gjaldahækkun allt næsta ár og þetta er bara stefnubreyting og
    ríkisstjórnir geta breytt um stefnu. Við erum auðvitað kosin til þess.
    Stefnubreytingin felst í því að það var unnið að því með skipulegum hætti
    að lækka kostnaðarhlutdeild sjúklinga. Svo snúa menn sér bara að því að
    þessi ríkisstjórn geri það. Ég hef aðeins skoðað plan Samfylkingarinnar í
    heilbrigðismálum, það sem var lofað fyrir síðustu kosningar. Ég sá þetta
    ekki þar. Kannski var þetta einhvers staðar. Kannski getur einhver bent
    mér á að það hafi staðið í einhverjum kosningabæklingnum að það ætti að
    auka kostnaðarhlutdeildina. En þegar maður skoðar yfirlýsingar núverandi
    hæstv. forsætisráðherra og þegar maður skoðar yfirlýsingar núverandi
    hæstv. heilbrigðisráðherra þá er þetta akkúrat á hinn veginn. Það er talað
    um að eldra fólk eigi að vera í heiðurssæti og að það eigi að sjá til þess
    að fólk búi ekki með nokkrum hætti við einhverjar skorður hvað það varðar
    að njóta heilbrigðisþjónustu út af gjaldtöku.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn er mjög vinstri sinnuð. Hún
    er miklu vinstri sinnaðri en fólk kannski áttar sig á. Það kemur ekki bara
    fram í hækkuðum sköttum og gjöldum. Það kemur ekki bara fram í þessum
    auknu útgjöldum og miklu skattahækkunum. Það kemur líka fram í allri
    nálgun þeirra. Ég vek athygli á því að allar skattahækkanirnar — og nú
    lofuðu þau að hækka ekki skatta en svo hækka þau skatta — eru sama nálgun
    og er í nýmarxismanum sem maður sér víða. Nýmarxismi er ekkert öðruvísi en
    gamli marxisminn. Hann gengur út á það að hluti þjóðfélagsins séu
    arðræningjar og síðan séu aðrir fórnarlömb. Það er alveg sama hvaða
    skattur það er, menn nálgast það aldrei út frá því hvaða afleiðingar
    skatturinn gæti haft fyrir fólk og fyrirtæki. Aldrei. Þetta snýst um að
    gera atvinnugreinar tortryggilegar og að menn séu einhvern veginn að
    svindla bara með því að vera til og geti bara borgað meira. Svo er
    atvinnugrein eftir atvinnugrein eftir atvinnugrein tekin til. Það er
    sjávarútvegurinn, það er ferðaþjónustan og það eru bankarnir sem verða
    fyrir barðinu á þessari hugmyndafræði. En eftir stendur að þessi
    vinnubrögð öll sýna lausatök. Við sjáum hvernig framkvæmd fjárlaga var.
    Það vantaði ekki gífuryrðin; hér væri loksins komið fólk sem kynni til
    verka. En fjárlögin á þessu ári fóru algjörlega út um þúfur. Það var alveg
    ljóst og er orðið ljóst og viðurkennt að ekki <ns:bjalla/> hefur tekist
    vel til við framkvæmd fjárlaga, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Og
    áfram er haldið við að hækka skatta og auka útgjöld og fara alls ekki
    eftir athugasemdum frá fagaðilum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>