<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:14:36" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:16:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:14:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta
    ræðu og áminningu um að fara varlega í skattahækkanir. En eftir að hafa
    hlýtt á bróðurpart ræðunnar stóðu eftir spurningar: Hvaða leið vill
    Sjálfstæðisflokkurinn fara? Hann hefur kynnt leiðir, m.a. að selja
    ríkiseignir, selja þá eina hlið landsmanna út í heim, selja
    Keflavíkurflugvöll eða Isavia, selja einokunarfyrirtæki eins og Rarik. Ég
    er ekki viss um að það sé endilega mjög gott fyrir íbúa landsbyggðarinnar
    að það verði selt. Ég held að það sé jafnvel betra fyrir
    einokunarfyrirtæki, nema það sé búið að búa til sterkari umgjörð um það
    þannig að gjaldskrá sé ekki hækkuð út í eitt eða að haldið sé áfram að
    byggja upp innviði. Það þarf að vera traust umgjörð um það. Það á ekki
    síður við um Landsnet sem er á sölulista Sjálfstæðisflokksins. Eru þetta
    einu tillögurnar eða er eitthvað fleira sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur
    til í þessari umræðu? Ég hef heyrt það hér í umræðunni að hv. þingmaður er
    sammála markmiði ríkisstjórnarinnar um að láta enda ná saman í
    ríkisfjármálum. Þess vegna væri fróðlegt að heyra hvaða leið
    Sjálfstæðisflokkurinn vill fara. Menn fara ekki langt á því, tel ég, að
    selja ÁTVR. Það er alltaf nefnt og blásið upp. Ég get alveg verið sammála
    því að það megi endurskoða það fyrirkomulag. En við erum ekkert að fara
    langt með það í því að ná endum saman í ríkisfjármálunum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>