<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:16:30" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:18:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:16:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisandsvar og
    ég fagna því að fá spurningar sem þessa. Nú skulum við ræða hvað við getum
    gert. Hv. þingmaður byrjaði að ræða eignasöfnin og ég mun nota þessar tvær
    mínútur sem ég hef til að svara því. Landsbankinn t.d. er í
    samkeppnisrekstri og við þekkjum það að það er líka áhætturekstur. Við
    vitum að ef við myndum selja hann þá gætum við greitt niður skuldir og þar
    af leiðandi myndi þessi stóri liður, þ.e. fjármagnsskuldbindingar eða
    vextir — tölum bara íslensku, bara mannamál — þeir myndu lækka. Isavia er
    líka í samkeppnisrekstri og það er mjög sjaldgæft að félag eins og Isavia
    sé í ríkiseigu, sérstaklega sjaldgæft að það sé í fullri ríkiseigu. Ef ég
    man rétt snúast tillögur okkar um að selja hlut af því. Það myndi lækka
    fjármagnskostnaðinn en myndi örugglega líka geta skapað tækifæri vegna
    þess að það skiptir máli fyrir okkur að Keflavíkurflugvöllur og Isavia
    standi sig vel í samkeppninni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sama má segja um Landsnet. Það er ekki um það að ræða að selja
    meiri hlutann í því en það er enginn vafi í mínum huga að
    langtímafjárfestar hefðu áhuga á því að koma að því borði enda eru slíkar
    fjárfestingar oft eitthvað sem hentar t.d. lífeyrissjóðum og öðrum slíkum,
    þó að það fyrirtæki yrði áfram rekið innan mjög þröngs reglugerðarramma
    eins og er í dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi ÁTVR — sko, seljum eignirnar. Við þurfum ekkert á þessu
    að halda, fyrir utan allar eignirnar sem ríkið á. Ef þú keyrir um sveitir
    landsins og sérð býli sem er illa farið og er ósómi að þá eru allar líkur
    á að það sé í eigu ríkisins. <ns:bjalla/> Það skapast ekki tækifæri, og
    við erum að glata tækifærum og verðmætasköpun, <ns:bjalla/> þegar við erum
    að halda í þessar 300 jarðir sem ríkið á.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>