<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:19:00" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:21:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:19:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil minna á að bankakerfið var einu sinni í eigu
    einkaaðila alfarið en nú er það að stórum hluta í eigu einkaaðila eða ekki
    á höndum ríkisins. Vegna þess að það var talað um að þetta væri
    áhætturekstur og það væri að einhverju leyti hægt að losna við þá áhættu
    þá er ágætt að rifja það upp að árið 2008 fóru þessir einkabankar verulega
    illa og það var ekki svo að almenningur sæti ekki uppi með neina áhættu.
    Ég held því að það séu veigalítil rök hvað það varðar að menn losni við
    áhættu. Það skiptir miklu máli að við höldum vel utan um þessar
    eignir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar menn tala um að selja Leifsstöð, eina hlið landsmanna úr
    landi, að það sé einhver lausn, þá hefur þetta verið reynt á öðrum
    Norðurlöndum, t.d. á Kastrup sem var selt til ástralskra fjárfesta. Hver
    var niðurstaðan þar? Jú, það var þannig að Danir sáu mjög á eftir þessu.
    Gott ef þetta er ekki komið aftur í eigu opinberra aðila vegna þess að það
    var þunnt eiginfjárhlutfall í Kastrup og tekjur fóru meira og minna í að
    greiða einhverja ofurvexti sem voru settir á fyrirtækið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það er áhugavert að Sjálfstæðismenn séu ekki tilbúnir að stækka
    kökuna. Það er búið að tala hérna margoft um hvort það eigi ekki að skoða
    að auka veiðar. Það er ekki mikill hljómgrunnur fyrir því og menn vilja
    alls ekki breyta kerfinu þar sem menn eru ekki að nýta veiðiheimildir,
    t.d. eins og ufsann sem er bara veiddur til hálfs af útgefnum
    veiðiheimildum. Menn sætta sig við það og eru ekkert gagnrýnir hér í
    ræðustóli yfir því að það sé margföld verðlagning á fiski heldur gera hér
    veigamiklar athugasemdir <ns:bjalla/> við krónutöluhækkun upp á 1 kr. En
    varðandi þessar stóru upphæðir og þá stóru möguleika sem er búið að tíunda
    hér fyrir þingmönnum <ns:bjalla/> að gætu gert gæfumuninn þá er ekki
    einblínt á það. Það væri áhugavert að heyra hv. þingmann ávarpa þann
    þátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>