<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:21:33" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:23:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:21:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Förum nú aðeins yfir þetta. Við erum með
    fiskveiðistjórnarkerfi sem hv. þingmaður og aðrir stjórnarþingmenn segja
    að sé svo ofsalega arðbært að það sé hægt að skattleggja miklu meira en
    allar aðrar atvinnugreinar í þjóðfélaginu. Svo kemur maður og segir:
    Heyrðu, af hverju breytum við því ekki? Af hverju breytum við því ekki,
    maður, ha? Og ná í meiri pening? Það er engin þjóð sem skattleggur
    sjávarútveginn meira en við. Ufsinn er frábær. Ég spilaði með honum í
    utandeildinni, þetta er gott félag. Ég er til í að ræða það lengi. En
    hvernig það dettur inn í þessa umræðu er mér hulin ráðgáta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eigum við aðeins að ræða ríkisbanka? Ræðum ríkisbanka. Ég held að
    hv. þingmaður hafi rætt Íbúðalánasjóð. Ég hugsa að það hafi verið
    einfaldasta gerð af banka í eigu ríkisins. Við erum enn þá að borga fall
    Íbúðalánasjóðs. En það sem gerðist var að það var bankakreppa úti um allan
    heim. Við fórum sem betur fer þá leið, virðulegi forseti, að við létum
    skattgreiðendur ekki borga eigendum bankanna eins og aðrar þjóðir gerðu.
    Það var dýrt og erfitt á þeim tíma en ef við hefðum farið þá leið þá hefði
    ekki verið nein von. Við gerðum mistök sem ég held að við vonandi gerum
    ekki aftur. Bankakerfið var orðið allt of stórt og menn hugðu ekki að því
    hvaða áhætta fólst í því. Það breytir engu hvort það sé ríkisrekið eða í
    einkaeigu en hefði það verið í ríkiseigu hefðum við ekki átt neina von,
    ekki neina von, því alveg eins og Íbúðalánasjóður sem var nú bara ein, ég
    ætla ekki að segja skúffa, en það var ekki stór banki en honum tókst að
    fara svo lóðbeint á hausinn að núna, nærri 20 árum seinna, erum við enn að
    greiða af honum. <ns:bjalla/> Þannig að það var kannski ekki gott dæmi að
    segja að það sé stórkostlegt að eiga ríkisbanka ef út í það er
    farið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>