<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T16:39:32" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:41:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:39:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir
    yfirferðina og það er gott að heyra að hv. þingmaður er metnaðarfullur í
    sínu starfi. Mig langar til að velta aðeins upp í ljósi þeirra áhyggna sem
    hv. þingmaður hefur af tekjum ríkissjóðs og hækkun þeirra, af því að hv.
    þingmaður var formaður fjárlaganefndar hér um langt skeið og hlýtur að
    hafa farið vandlega, eins og hann fór yfir í sínu máli, yfir og viljað
    fara varlega í því að auka útgjöld ríkisins án þess að tekjur kæmu á móti
    þannig að hér var ríkissjóður rekinn með halla frá 2019 og þá vonandi fram
    til næsta árs, ef vel tekst til með þetta fjárlagafrumvarp. Hvaðan hélt
    hv. þingmaður að tekjurnar til að greiða þessar upphæðir til baka kæmu?
    Það er þá eitthvað alveg nýtt í heiminum ef hægt er að reka apparat eins
    og ríkissjóð með halla án þess að það valdi kostnaði. Við búum í dag eftir
    þetta tímabil við fjármagnskostnað sem nemur um 150 milljörðum kr. á ári,
    milljarðar sem ekki verða notaðir í önnur góð verkefni fyrir ríkið, og
    eigi einhvern tímann að lækka þessa tölu verður það ekki gert öðruvísi en
    að draga úr útgjöldum eða auka tekjur. Mér leikur forvitni á að vita, í
    ljósi þeirra áhyggna sem hv. þingmaður hefur af þessum fjárlagabandormi,
    hvaðan hann hélt að tekjurnar ættu að koma eða afgangurinn sem átti að
    greiða til baka þann halla sem hann á sínum tíma stóð fyrir að
    samþykkja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>