<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:41:54" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:43:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:41:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir mjög
    gott andsvar. Það er alveg hárrétt sem hæstv. ráðherra segir, hér var
    ríkissjóður rekinn með halla. Ég tel mig nú nokkurn veginn vita það og
    geta staðfest það hér, og þarf ekki svör hæstv. ráðherra við því, að hann
    viti nokkuð vel af hverju það var. Ég er alveg viss um að það eru til gögn
    uppi í fjármálaráðuneyti um Covid-19 faraldurinn sem reið yfir þjóðina.
    Við sátum hér í þessum þingsal og það var verið að karpa um það hvað ætti
    að setja mikið út til að styðja við fyrirtækin í landinu og heimilin. Það
    getur vel verið að menn hafi farið of geyst. Sennilega hafa menn sett of
    mikið út en krafan hér frá þeim sem nú sitja í ríkisstjórn var hins vegar
    sú að setja meira og meira. Svo gagnrýnir þetta fólk í dag. Allt í lagi,
    en hvað gerðist? Það eru örugglega til gögn um það líka uppi í
    fjármálaráðuneyti, ef ég man rétt, að á þremur árum komi 300 milljarðar í
    auknum tekjum umfram áætlanir, 300 milljarðar í auknum tekjum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að það sé akkúrat leiðin sem við þurfum að fara,
    virðulegur forseti. Við þurfum að vaxa út úr vandanum. Við þurfum að efla
    fyrirtækin í landinu. Við þurfum að gefa þeim svigrúm til að vaxa út úr
    þessu og gefa okkur meiri tekjur og borga þannig fyrir velferðina, ekki
    með auknum skatttekjum, ekki með auknum álögum, heldur leyfa fyrirtækjunum
    að vaxa. Það er sú leið sem ég sé fyrir mér. Ég trúi ekki öðru en að
    hæstv. fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar sé bara á mjög svipuðum
    stað og ég í þeirri hugsun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>