<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-14T16:44:00" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:45:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:44:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir svarið.
    Þessi vaxtarkippur sem átt sér stað á árinu 2022 olli því verðbólguskoti
    sem við erum enn þá að díla við. Það er hægt að vaxa en að vaxa með
    lántöku endar bara í táradal sem við höfum ekki enn þá séð fyrir endann á.
    Það er ekki sá vöxtur sem þessi fjármálaráðherra er tilbúinn að styðja,
    það er víst ábyggilegt. Það er einmitt þess vegna sem þessi ráðherra er að
    leggja fram tillögu að hallalausum fjárlögum í fyrsta skipti frá árinu
    2019. Þú getur ekki eytt með lánsfé til að koma þér út úr þeim vandræðum
    sem sköpuð voru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil í þessu samhengi nefna að heildarumfang viðbótarskulda
    ríkisins var upp á 30% ofan á það sem var. Hagvöxtur í þróuðu hagkerfi
    eins og íslenska hagkerfinu þætti bara býsna góður ef hann væri upp á 3%.
    Hann þarf að standa undir öllu, ekki bara syndum fortíðarinnar heldur öllu
    öðru, allri viðbót sem kemur vegna þróunar í aldri þjóðarinnar o.s.frv. Ég
    óska því eftir örlítið skýrara svari en því að vaxa út úr vandanum. Hvað
    meinar hv. þingmaður með því að vaxa út úr vandanum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>