<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:45:36" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:47:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:45:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra
    kærlega fyrir svarið. Hvað meina ég með að vaxa út úr vandanum? Ég meina
    það að skapa fyrirtækjunum þannig skilyrði að þau sjái tækifæri í því að
    stækka, eflast og geta þannig skapað meiri verðmæti sem væntanlega verða
    til þess að það koma auknar tekjur í ríkissjóð. Þetta er bara sú leið sem
    við höfum farið. Þetta er sú leið sem við fórum 2013 og við sjáum hvernig
    það gekk. Það gekk bara býsna vel ef ég man rétt. En ég vil bara segja það
    hér að lokum að það er alveg rétt sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra
    sagði áðan að hann er að koma hér með tillögu að hallalausum fjárlögum.
    Þetta er nefnilega tillaga. Það er lykilmálið í þessu. Það er ekki búið að
    ná hallalausum fjárlögum. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er búinn að
    koma með sína tillögu og hún er hér til umræðu. Hvort hún muni ganga eftir
    munum við sennilega ekki vita fyrr en í ríkisreikningi sem verður birtur
    2028.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vona svo sannarlega, virðulegur forseti, að okkur takist að ná
    hallalausum fjárlögum, en ég ætla bara að endurtaka það sem ég er búinn að
    segja ansi oft og ætla að segja það aftur: Það má ekki kosta hvað sem
    er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>