<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:47:17" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:49:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:47:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir
    fína ræðu og áhugaverða og hann nefnir þarna mörg atriði sem við í
    efnahags- og viðskiptanefnd munum kafa svolítið ofan í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar kannski í fyrra andsvari að heyra aðeins í þingmanninum
    því að Framsóknarmenn geta stundum verið dálítið lausnamiðaðir og hafandi
    unnið lengi með Framsóknarmönnum veit ég að þeir eru oft tilbúnir að fara
    svolítið blandaða leið. Þá er ég að tala um blandaða leið af tekjuöflun og
    hagræðingu og það er akkúrat sú leið sem við erum að fara í þessu
    frumvarpi. Hann nefnir ekki í sinni ræðu bankaskatt sem hefur verið
    gagnrýndur af mörgum og ástæðan fyrir því að lögð er fram tillaga um að
    hann sé lagður á er sú að arðsemi bankanna hefur verið mjög mikil:
    Bankarnir skiluðu 94 milljörðum í hagnað á síðasta ári, langt umfram það
    sem þeir áætluðu sjálfir. Ég skoðaði milliuppgjörin þeirra, þau eru komin
    vel yfir það sem var í fyrra, mig minnir að meðalhagnaðurinn yfir stærstu
    bankana þrjá sé 50 milljarðar. Það kom út skýrsla árið 2023 frá þáverandi
    viðskiptaráðherra, núverandi formanni Framsóknarflokksins, Lilju Dögg
    Alfreðsdóttur, þar sem hún tók á áhrifum þess þegar bankaskatturinn var
    lækkaður síðast. Það er ekki annað að sjá af skýrslunni, þar sem m.a. SFF,
    Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, áttu fulltrúa í starfshópnum, en að
    lækkun á bankaskattinum hafi ekki skilað sér til neytenda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvert er viðhorf
    Framsóknarflokksins til þessarar tillögu um að hækka bankaskattinn, taka
    þennan slag með okkur og að bankarnir komi með okkur í þá vegferð að koma
    okkur yfir núllið og skila hallalausum fjárlögum? Við fórum svo sannarlega
    þá leið að reyna að finna hvar bökin eru breiðust og það eru
    fjármálafyrirtækin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>