<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:49:35" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:51:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:49:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur kærlega
    fyrir fyrirspurnina. Ég ætla að byrja á að segja áður en ég fer lengra inn
    í efnið að ég hef ekki lesið þessa skýrslu sem hv. þingmaður vitnar hér
    til og þekki ekki efni hennar þar af leiðandi. En auðvitað snýst þetta
    alltaf um aðstæður og aðstæður á markaði. Það geta verið allt aðrar
    aðstæður núna en voru fyrir þremur árum, fimm árum eða sjö árum, og eru
    allt aðrar aðstæður. Þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við
    erum að taka þessar ákvarðanir, hvort sem það er með bankaskatt eða aðra
    skattheimtu, að við skoðum í hvaða ástandi og efnahagsástandi við gerum
    það. Ég vil bara segja varðandi bankaskattinn: Jú, það getur vel verið að
    það sé hægt að leggja á bankaskatt. En hvað þýðir það? Hvert mun hann
    fara? Mun hann fara út í verðlagið? Já, ég óttast það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í greinargerðinni með frumvarpinu sem við erum hér að ræða er t.d.
    talað um að þetta geti og muni að öllum líkindum hækka útlánsvexti og
    vaxtakostnað af 50 millj. kr. óverðtryggðu láni með breytilegum vöxtum um
    30.000 kr. á ári. Ég veit að þetta eru ekki miklir peningar. Þetta segir í
    frumvarpinu sjálfu. Bankinn sagði í morgun, ef ég man rétt, að þetta myndi
    skerða útlánagetu bankanna um 50 milljarða. Hvað þýðir það fyrir ungt fólk
    í dag eða þá sem vilja reyna að fá lán? Þetta þurfum við að skoða í
    nefndinni og á meðan við höfum ekki þessar upplýsingar og meðan ég hef
    ekki þessar upplýsingar nema bara í einhverju fyrirsagnaformi <ns:bjalla/>
    hef ég áhyggjur af því með þennan skatt, eins og alla þessa skatta hér, að
    þetta muni fara út í verðlagið og við séum að pissa í skóinn
    okkar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>