<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:52:01" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:53:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:52:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég
    hef stundum verið að hugsa það af því að það er auðvitað raunin að
    reynslan segir okkur að bankarnir hafa verið að velta þessu út í verðlagið
    þegar þeir hafa fengið aukna skattheimtu á sig. En það er ekki
    náttúrulögmál. Bankarnir geta líka ákveðið að standa með íslensku
    samfélagi og velta þessu ekki út í verðlagið og það er auðvitað bara
    ákvörðun þeirra sem stýra þessum fjármálafyrirtækjum. Ég velti fyrir mér
    hvort það geti verið hluti af þessu samkomulagi vinnumarkaðarins og
    Samtaka atvinnulífsins að þeir muni halda í sér með þessar hækkanir.
    <ns:frammíkall>Já, eins og ríkið?</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar hér í seinni fyrirspurn — er ekki eitthvað að
    klukkunni, fyrirgefðu, virðulegi forseti? — að spyrja hann út í
    framsetninguna á kílómetragjaldinu. Hvort honum finnist ekki sérkennileg
    framsetning hjá Samtökum fyrirtækja í ferðaþjónustu að leggja það þannig
    fram að kílómetragjald af erlendum ferðamönnum sé tekið af hagnaði þessara
    fyrirtækja. Mér finnst þetta svolítið sérkennileg framsetning og mig
    langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um það. Finnst honum það
    <ns:bjalla/> ekki sérkennileg framsetning að láta sem svo að
    kílómetragjöld erlendra ferðamanna séu tekin af hagnaði fyrirtækja í
    ferðaþjónustu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>