<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:53:37" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:55:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:53:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið.
    Varðandi bílaleigurnar og arðsemina er það bara eitt af því sem við þurfum
    að fá bílaleigurnar og ferðaþjónustuna til þess að svara inni í efnahags-
    og viðskiptanefnd. Væntanlega skýrist þetta að einhverju leyti af því að
    við vitum að ferðaþjónustan er búin að selja mjög mikið fram í tímann.
    Þannig að það er búið að greiða fyrir hluta af bæði gistingu og
    bílaleigubílum fyrir árið 2027 sem bílaleigurnar þurfa væntanlega að taka
    á sig með hækkandi kílómetragjaldi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það er ekkert rosalega langt síðan við í Framsókn, af því að
    hv. þingmaður var að tala um Framsóknarflokkinn og meðalhófið og
    miðjuleiðina og samstarfið sem við erum fræg fyrir, stóðum hér í
    þinghúsinu og vorum með okkar efnahagstillögur sem fólust m.a. í að lækka
    skatta <ns:bjalla/> á eldsneyti, sem var síðan gert. Við töluðum um
    þjóðarsátt, sem ég heyri að hv. þingmaður er að tala fyrir núna, og hæstv.
    forsætisráðherra, og við töluðum um lækkun á matarskatti. Þannig að ég er
    bara nokkuð glaður í dag með þetta, mér sýnist þetta allt vera að stefna í
    okkar átt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>