<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:55:11" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:57:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:55:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir
    prýðisræðu enda þingmaðurinn ágætlega að sér í þessum málaflokki og hefur
    töluverða reynslu. En mig langar að staldra við hugtakið framleiðniviðmið,
    því það er einmitt dæmi um skattahækkun sem hverfur inn í tæknilegt
    orðalag. Að setja framleiðniviðmið í 0 — hvað þýðir það? Ætli almenningur
    átti sig á því? Með því að setja framleiðniviðmið í 0 árið 2027 og hækka
    skattleysis- og þrepamörk minna en þau hefðu annars gert er talað um að
    ríkissjóður taki inn rúma 3 milljarða. Þetta leggst ekki bara á eitthvert
    fyrirtæki úti í bæ, þetta leggst á allt launafólk. Var ekki sagt einhvers
    staðar að það ætti ekki að auka skatta á venjulegt vinnandi fólk og það
    ætti ekki að plata? Fólk fær ekki sérstakan skattseðil þar sem stendur:
    Nýr skattur, ekkert framleiðniviðmið. En niðurstaðan er sú sama og ríkið
    heldur eftir stærri hluta launa fólks en ella hefði orðið. Þá finnst mér
    mjög mikilvægt að við ræðum þessa framleiðni, að það eigi að taka hana af;
    að fólk eigi að njóta góðs af henni en ekki í gegnum sjálft sig heldur í
    gegnum ríkið. Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Af hverju á launafólk að
    sætta sig við að framleiðniviðmið sé sett niður í 0 til að afla ríkissjóði
    3,1 milljarðs kr.? Er þetta ekki einfaldlega skattahækkun á launafólk
    falin inni í tæknilegri breytingu á skattkerfinu? 3,1 milljarður tekinn af
    öllu launafólki vegna þess að 1% framleiðniviðmið er tekið af
    fólki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>