<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:57:24" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 16:59:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:57:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Pétri
    Zimsen kærlega fyrir fyrirtaksfyrirspurn hér varðandi framleiðniviðmiðið.
    Spurningin til mín var á þessa leið: Af hverju á fólk að sætta sig við
    það? Ég veit ekki af hverju fólk á að sætta sig við það. Ég lagði þetta
    ekki fram og er ekki sammála þeirri nálgun sem kemur fram í þessum lögum
    eða þessum bandormi þar sem þetta kemur fram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst þetta bara hárrétt sem hv. þingmaður segir. Hér er
    verið að lauma inn bakdyramegin skattahækkun og ekki bara á einhvern einn
    hóp eða einhverja eina tekjutíund. Þetta bara kemur á alla. Það munu allir
    finna fyrir þessu. Þetta er skattahækkun, eins og hv. þingmaður segir, upp
    á 3,1 milljarð. Þannig að, já, það er svo sem lítið sem maður getur sagt
    um þetta annað en bara tekið undir með hv. þingmanni og áhyggjum hans hvað
    þetta varðar. Ég held að þetta nafn sé þannig til þess fallið að fólk
    kveiki ekki á perunni hvað þarna er raunverulega í gangi. En þess vegna
    bara mjög gott, bæði hjá hv. þingmanni og eins hv. þm. Hildi
    Sverrisdóttur, sem hefur verið að benda á þetta, að benda á að þetta er
    bara skattahækkun á almenning, á alla. Hvað verður veit maður ekki en eins
    og þetta er lagt fram er þetta 3,1 milljarður af annars 34 milljarða kr.
    skattahækkun þessarar ríkisstjórnar í ár, ofan á þá rúmlega 30 sem voru í
    fyrra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>