<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T16:59:36" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:00:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T16:59:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni
    fyrir gott svar. Í raun var ég ekki að reyna að krefja hann um svör við
    því hvers vegna þetta væri svona, frekar að deila með honum mínum
    vangaveltum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil beina sjónum mínum að kílómetragjaldinu. Það stendur skýrt
    í bandorminum að hækkunin sé ekki bara 5,2% verðlagsuppfærsla heldur að
    auki 4 milljarðar í tekjuauka fyrir ríkissjóð, tekjuauka, skattahækkanir.
    Þetta er ekki einhver tæknileg uppfærsla heldur er þetta meðvituð
    viðbótarskattheimta. Hún leggst ekki jafnt á alla. Hún bitnar sérstaklega
    á fólki sem þarf að aka mikið, ekki síst utan höfuðborgarsvæðisins, og á
    fyrirtækjum þar sem akstur er stór hluti rekstrarkostnaðar. Þegar akstur
    verður dýrari verður flutningur dýrari. Þegar flutningur verður dýrari fer
    hluti þess kostnaðar út í verðlag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá spyr ég hvort hv. þingmaður sé mér sammála. Hvað réttlætir 4
    milljarða viðbótarskatt á akstur <ns:bjalla/> á sama tíma og ríkisstjórnin
    segist vilja draga úr verðbólgu og bæta stöðu heimila og
    fyrirtækja?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>