<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:01:00" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:02:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:01:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir
    andsvarið. Stutta svarið er bara: Ekkert. Það er ekkert sem réttlætir
    þetta. Þarna er enn og aftur verið að seilast í vasa almennings. Nú er
    ekki verið að fara bakdyramegin eins og í því máli sem við vorum að ræða
    hér áðan heldur er farið beint framan að manni og framan að
    almenningi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvernig verður umræðan, virðulegur forseti? Jú, hún verður
    þannig að hér kemur fólk sem styður ríkisstjórnina og þingmenn
    ríkisstjórnarflokkanna og tala eins og þetta sé ekki neitt mál. Heyrðu,
    þetta er bara 1 kr. og 1 kr. skiptir engu máli. Bíddu, það er 1 kr. ef þú
    keyrir 1 km. Fyrir flutningabílana, eins og ég fór inn á áðan — ég hef séð
    útreikninga á því að fyrir stóran trukk sem flytur vörurnar heim til mín í
    Skagafjörð, og vörurnar frá fyrirtækjunum í Skagafirði suður til
    Reykjavíkur, þá þýðir þetta um 700.000 kr. aukningu á ári á bíl. Hvert
    heldur hv. þingmaður og virðulegur forseti að þessi skattahækkun fari?
    <ns:bjalla/> Hver haldið þið að borgi þetta? <ns:bjalla/> Haldið þið að
    flutningabílstjórinn borgi þetta? Nei, hann mun ekki borga þetta. Það erum
    við sem búum úti á landi sem munum borga þetta. <ns:bjalla/> Fyrirtækin
    úti á landi munu borga þetta með því að hækka verð á flutningskostnaði
    sinnar vöru suður á markað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>