<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:02:46" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:18:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:02:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú eru nokkrir dagar liðnir frá því að hæstv.
    fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og við fylgjum
    því eftir í dag með hinum svokallaða bandormi. Það er óhætt að segja að
    viðbrögð við fjárlagafrumvarpinu hafi ekki verið eins og til stóð af hálfu
    ríkisstjórnarinnar. Greiningaraðilar, hagsmunasamtök og aðilar á markaði
    hafa nánast einum rómi gefið þessu fjárlagafrumvarpi mjög gagnrýna umsögn.
    Meginmarkmiðið sem ríkisstjórnin virtist hafa í huga, þ.e. að þetta
    frumvarp myndi slá verulega á verðbólguvæntingar í þjóðfélaginu, hefur
    þannig engan veginn gengið eftir. Ef við förum aðeins yfir nokkur dæmi og
    nokkur viðbrögð þá sagði t.d. aðalhagfræðingur Íslandsbanka, eftir að hann
    hafði kynnt sér fjárlagafrumvarpið, að það hefði nú þegar haft áhrif á
    skuldabréfamarkaðinn þar sem fjárfestar væru farnir að verðleggja meiri
    verðbólgu inn fyrir næsta ár en áður en frumvarpið kom fram. Hann tók líka
    fram að gjaldahækkanir ríkisins yllu honum vonbrigðum og sendu röng
    skilaboð þegar kjarasamningar væru til endurskoðunar. Þetta rímar einmitt
    ágætlega við fyrstu viðbrögð á skuldabréfamarkaði þar sem álag á
    skuldabréf hækkaði. Aðalhagfræðingur Landsbankans sagði að það væri
    afskaplega óheppilegt að svona miklar gjaldahækkanir kæmu til og það muni
    líklega sjást í verðbólgumælingum um áramótin. Það fylgdi svo með að
    fljótt á litið yllu fjárlögin vonbrigðum með tilliti til verðbólgu. Stjórn
    Félags atvinnurekenda tók málið fyrir og ályktaði á stjórnarfundi sínum
    10. september 2026, félag sem hefur kannski ekki verið frægt fyrir að vera
    sérstakur andstæðingur ríkisstjórnarinnar. Þar kom þó býsna hvass tónn þar
    sem fram kom að fjárlagafrumvarpið 2027 ylli vonbrigðum þó að vissulega
    væri jákvætt að sjá stefnt að hallaleysi. Fram kom að það ylli miklum
    vonbrigðum að ríkisstjórnin gengi ekki lengra í aðhaldi á útgjaldahliðinni
    og væri þess í stað að kjósa að sækja tugi milljarða í nýjar álögur, m.a.
    með hækkun kílómetragjalds og aukinni skattlagningu á atvinnulífið.
    Félagið lét þá líka fylgja með að það væri harðlega gagnrýnt að krónutölur
    ríkisins hækki og að með því væri ýtt undir verðbólgu og
    verðbólguvæntingar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Rauði þráðurinn í þessum viðbrögðum er auðvitað
    sá sami og það væri auðvitað hægt að tína til talsvert fleiri dæmi. Ef við
    drögum þetta saman þá hafa margir lýst yfir miklum vonbrigðum með
    gjaldahækkanir upp á 5,2%. Þetta sé óviðunandi og sendi kolröng skilaboð
    út á markaðinn. Það hefur líka komið fram að ríkisstjórnin gangi allt of
    langt í hækkun gjalda og skatta á fyrirtæki og atvinnulíf og að alltof
    skammt sé gengið í aðhaldi gagnvart hinu opinbera. Með öðrum orðum, það
    erum ekki bara við í stjórnarandstöðunni sem tölum á þennan veg heldur
    líka sérfræðingar á þessu sviði, hagsmunasamtök o.s.frv. Vandinn við það
    að fara í svona umfangsmiklar gjaldahækkanir er kannski ekki síst hvaða
    skilaboð felast í því. Þegar ríkisstjórnin boðar og réttlætir að hækka sín
    gjöld um 5,2% myndast ákveðið skjól fyrir aðra leikendur á markaði. Þeir
    geta gert slíkt hið sama. Ríkisvaldið er í raun búið að missa ákveðið
    gagnrýnisvald, ef svo má að orði komast, eða sitt áhrifavald til að
    gagnrýna slíkar hækkanir hjá öðrum aðilum sem geta þá stigið fram með
    hækkanir af þessari stærðargráðu. Áhrifin af þessu geta verið þau að
    verðbólga læsist í þessu hlutfalli, þ.e. 5,2%, sem er auðvitað langt yfir
    öllum viðmiðum og langt yfir öllum væntingum fólks um að hún eigi að koma
    niður á næsta ári. Það sem meira er að með þessu fer ríkisstjórnin
    auðvitað beinlínis gegn þeirri leiðsögn sem Seðlabankinn veitti hér í
    ágúst, seinni hluta ágúst, við kynningu á nýjustu stýrivaxtaákvörðun
    bankans þar sem stýrivextir voru hækkaðir í þriðja sinn í röð. Þá kom fram
    að meginástæða verðbólgu hér innan lands væru opinberar gjaldahækkanir.
    Hæstv. forsætisráðherra kom þá í kjölfarið fram í fjölmiðlum og ekki var
    annað að heyra en að hæstv. ráðherra ætlaði að taka þetta til sín. Það var
    talað um að mögulega væri gengið of langt í gjaldahækkunum. Þetta mætti
    mögulega skoða. En svo tveimur vikum síðar er kynnt fjárlagafrumvarp þar
    sem akkúrat þetta sama stef er endurtekið. Öll gjöld hækkuð upp á 5,2%,
    þvert ofan í það sem Seðlabankinn benti á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er þó óneitanlega sérstakt fyrir þingmenn
    og þingheim að koma hér og ætla sér að ræða þetta mál þegar hæstv.
    forsætisráðherra hefur boðað í fjölmiðlum nánast jafnharðan að líklega
    verði þessi hækkun afturkölluð og endurskoðuð í samtali við
    verkalýðshreyfinguna. Þessu er bara svona spilað út en látið fylgja með að
    líklega verði bakkað síðar. Hvar erum við stödd? Við erum annars vegar með
    þetta frumvarp en það er eiginlega jafnharðan búið að spila því út að
    þessi hækkun komi líklega ekki til. Þetta er svolítið áhugaverð aðferð hjá
    ríkisstjórninni og verður ekki annað sagt en að við séum stödd í einhverri
    sérkennilegri skák eða samningatækni af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það
    vekur upp ákveðnar spurningar um það hvað við erum í raun að gera í
    þessari umræðu hér. Ég skal heldur ekki líta fram hjá því að greinargerð
    frumvarpsins sem við erum að ræða hér, þ.e. bandormsins, gengur þó nokkuð
    langt í að rökstyðja þessa 5,2% hækkun. Þar er tekið fram að með því að
    hækka um 5,2% sé algerlega tryggt að gjöldin haldi verðgildi sínu milli
    ára í stað þess að rýrna að raunvirði, eins og það er orðað. Svo segir
    líka í greinargerðinni að skattalækkanir hafi óbein áhrif á hagkerfið með
    því að draga úr eftirspurn og minnka verðbólguþrýsting. Það er nú svona
    verið að stíga dálítið fram og rökstyðja og réttlæta þetta allt saman. Og
    þó að þessi rökstuðningur sé ekki hafinn yfir gagnrýni, og ég sé ekki
    alveg sammála því sem þar kemur fram, verður auðvitað fróðlegt að sjá
    rökstuðninginn fyrir því að fara hina leiðina eins og hæstv.
    forsætisráðherra virðist vera að boða. Ríkisstjórnin þarf þá að finna
    þennan kostnað á móti annars staðar í fjárlögunum og það er látið ósagt
    hvaðan það á að koma. Verður það með aðhaldi eða verður það með
    tekjuöflun? Eða, svo að við tölum hreint út, með skattahækkunum á fólk og
    fyrirtæki, eins og maður býst nú við?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta frumvarp kveður á um stórar og um margt groddalegar aðgerðir
    þegar kemur að því að sækja tekjur út í atvinnulífið. Ein af þeim er sú
    boðaða breyting að færa starfsemi baðlóna upp um virðisaukaskattsþrep, úr
    11% í 24%. Þaðan ætlar ríkissjóður að fá 4 af þeim sirka 10 milljörðum sem
    stefnt er að að taka úr ferðaþjónustunni á næsta ári, grein sem var alls
    með hagnað upp á 20 milljarða á sínu síðasta heila rekstrarári. Hinir 6
    milljarðarnir eiga að koma með ferðamannapassa og hækkun kílómetragjalds.
    Ég tók hér í síðustu viku þátt í umræðu við hæstv. atvinnuvegaráðherra um
    þetta. Þar kom þetta atriði, þessi hækkun virðisaukaskatts á baðlón, til
    umræðu. Ég verð að játa að það vakti ákveðna athygli mína hvernig ráðherra
    svaraði þessu til, þ.e. hvernig hún sæi fyrir sér að baðlónin myndu
    bregðast við. Svarið var einhvern veginn á þá leið að þau þyrftu
    einfaldlega að finna út úr því, hvort það yrði í formi hækkaðs
    aðgangseyris eða hvort baðlónin myndu bara taka þetta einhvern veginn á
    kassann, eins og það má orða það, taka þetta af sínu eigin fé eða sínum
    hagnaði til að greiða þessa hækkun. Á sama tíma er ríkisstjórnin að boða
    markaðsátak fyrir ferðamenn hingað til lands fyrir nokkur hundruð
    milljónir. Hún er í sama skrefinu að boða verulegar hækkanir á greinina
    sem munu óhjákvæmilega koma fram í verðhækkunum. Við erum að reyna að
    selja fólki það að koma hingað. Það er auðvitað þekkt í þessari
    atvinnugrein að verðlagið er einmitt það sem er okkar áskorun hér á landi.
    Ferðamenn eru almennt mjög hrifnir af landi og þjóð, náttúru, matnum,
    fólkinu. En þetta er það sem er yfirleitt nefnt, verðlagið þykir hátt. Það
    er óhjákvæmilegt annað en að 10 milljarða viðbótarreikningur á svona
    atvinnugreinar þýði að verðlag muni hækka. Og það er alveg rétt líka, sem
    kom fram hjá hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni hér áðan, að í mörgum
    tilvikum er greinin búin að selja sínar ferðir töluvert fyrir fram,
    jafnvel ári áður, og þessar hækkanir eru að koma á áður seldar ferðir, sem
    gerir verkefnið í raun enn flóknara.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað sem hefur vakið athygli mína hvað þetta atriði varðar er
    hvernig talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa talað um þessa hækkun eins og
    þetta sé svona lítið og léttvægt mál. Ég held að ég fari rétt með að
    hæstv. forsætisráðherra líkti þessu við það að þegar hún færi í bíó með
    fjölskyldunni þá greiddi hún jú fullan virðisaukaskatt ofan á bíómiðann.
    Það voru einhvers konar rök fyrir því að hækka virðisaukaskattsþrep á
    baðlónin, þetta hefur verið kallað lúxusvara. Það er með miklum ólíkindum
    að það sé talað svona til þessara mikilvægu vaxtarbrodda í
    ferðaþjónustunni. Baðlón eru ekki einhver lúxus heldur gríðarlega
    mikilvægur áfangastaður sem hefur notið mikilla vinsælda. Bygging þeirra
    er gríðarlega fjárfrek. Reksturinn kostar mikið og þau þurfa á mikilli
    aðsókn að halda til þess að vera réttum megin í sínum rekstri. Og það er í
    raun og veru hálfótrúlegt að þurfa að taka þetta fram en baðlón eru ekki
    að keppa við aðra starfsemi hér innan lands. Við getum ekki speglað þetta
    út frá okkur, hvort við ætlum í bíó með fjölskyldunni eða í baðlón. Baðlón
    eru að keppa um hylli ferðamanna. Við erum að keppa við önnur
    ferðamannalönd að þessu leyti. Við erum að keppa um hylli ferðaheildsala
    og ferðaskipuleggjenda sem skipuleggja sínar ferðir og sitt vöruframboð
    með miklum fyrirvara. Við erum að tala um sérfróða aðila sem fylgjast mjög
    vel með því sem er að gerast, fylgjast vel með umræðunni, breytingum og
    hreyfingum í greininni á hverjum stað. Það er því ekkert smámál þegar
    svona stór breyting er gerð í einu skrefi. Ákvörðun um að hafa baðlón í
    11% virðisaukaskattsþrepi var heldur ekki tekin svona einhvern veginn, hún
    er ekki úr lausu lofti gripin. Baðlónin er hluti af fjölmörgum undanþágum
    í lögum um virðisaukaskatt sem koma fram í 14. gr. laganna, en þar er
    tiltekin ákveðin starfsemi sem er í þessu lægra þrepi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég leyfi mér að vekja athygli á 1. tölulið þar sem talað er um
    fólksflutninga. Í 2. tölulið er talað um útleigu hótel- og gistiherbergja
    og aðra gistiþjónustu. Í 3. tölulið er talað um þjónustu ferðaskrifstofa,
    ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga. Í 8. lið er talað um sölu á matvörum
    og sölu á áfengi. Í 13. tölulið er talað um aðgangseyri að baðhúsum,
    baðstöðum, gufubaðstöðum og heilsulindum og í 14. tölulið er svo talað um
    ferðaleiðsögn. Það þarf engan sérfræðing í skattarétti til að átta sig á
    ástæðum þess að þessir liðir enda allir í þessu undanþáguákvæði. Þetta er
    augljóslega vegna þess að við erum að reyna að tryggja samkeppnishæfara
    Ísland þegar kemur að ferðamennsku. Í raun mætti fara með þau gleraugu sem
    ríkisstjórnin hefur sett upp á alla þessa liði og spyrja hvort þetta sé
    ekki bara einhvers konar lúxus. Ætti þetta ekki bara allt að hækka upp í
    24%? Það er nóg af tekjum til að sækja þar. Það hlýtur þá að vera einhver
    lúxus að fara út að borða. Það hlýtur að vera lúxus að ferðast um landið
    með leiðsögumanni eða kaupa sér far með rútu eða leigja sér hótelherbergi.
    Það blasir við að þessi rökstuðningur stenst auðvitað enga
    skoðun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Annar stór liður sem ríkisstjórnin sækir í og
    fram kemur í þessu frumvarpi sem við ræðum hér í dag er bankaskatturinn
    sem á að hækka um 6 milljarða. Svona mikil hækkun mun vitaskuld hafa áhrif
    á lánakjör og vaxtakjör til heimila og fyrirtækja. Annað er einfaldlega
    óhjákvæmilegt. Af því ég var að hlusta hér á umræðuna áðan, m.a. á hv. þm.
    Örnu Láru Jónsdóttur, þá getum við ekki horft fram hjá því að svona hækkun
    hefur áhrif. Nú þegar hafa komið fram greiningar frá formanni fjármálaráðs
    sem telur að þetta gæti skert útlánagetu bankanna um 50 milljarða. Við
    getum auðvitað ekki leyft okkur, virðulegi forseti, að hugsa þannig að
    bankarnir græði svo mikið að þeir hljóti bara einhvern veginn að finna út
    úr þessu. Það er ekki ábyrg framsetning. Við hljótum að þurfa að reikna
    dæmið til enda. Ef þetta hefur engin áhrif þá hlýtur næsta spurning að
    vera hvort við ættum ekki bara að hækka bankaskattinn miklu meira, sem
    væri þó sérstakt því að hann er einna hæstur hér á Íslandi af þeim löndum
    sem við berum okkur saman við. Það má líka í þessu samhengi vitna til þess
    sem formaður Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra, sagði um bankaskattinn
    á sínum tíma, það var árið 2019; að bankaskattur væri allt of hár og það
    skilaði sér beint út í verðlag bankanna. Það má taka undir þau
    sjónarmið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil svo að lokum nefna eitt atriði, virðulegi forseti, til
    viðbótar sem er endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna íbúðarhúsnæðis. Í
    fjárlögum og bandormsfrumvarpinu kemur fram að kveðið er á um að lækka
    endurgreiðslur úr 35% niður í 20%. Í þessu felast auðvitað líka ákveðin
    skilaboð. Skilaboðin gagnvart byggingarmarkaðnum og verktökum eru þau að
    reikna megi með enn frekari kólnun. Það á í raun og veru að vera enn minna
    að gera á næsta ári. Þetta hlutfall hefur verið af ýmsum toga í gegnum
    tíðina. Á köflum var þetta 100% endurgreiðsla sem er gjarnan gert til að
    reyna að örva byggingarmarkaðinn. Lengi vel var þetta 60%. Þetta hefur
    verið 35% nú um skeið en nú er lagt til að það lækki enn frekar. Ég nefni
    þetta vegna þess að staðan á byggingar- og fasteignamarkaði er mjög þung
    nú þegar. Verktakar og byggingaraðilar sitja margir hverjir uppi með
    stóran lager af íbúðum sem hreyfast ekki, seljast ekki. Hár vaxtakostnaður
    rífur svo í og étur upp eigið fé í verkefnum og jafnvel fyrirtækjunum
    sjálfum. Nú þarf að gæta að því að við búumst við því að hagkerfið sé að
    kólna og í því samhengi kunna að vera rök til að halda þessu hlutfalli
    lágu. En ég vek athygli á því að við erum að ganga enn lengra. Við erum að
    lækka það enn frekar. Ég spyr mig með sama hætti, virðulegi forseti: Hvaða
    greiningar liggja þarna að baki? Hvað með verktaka sem ætla t.d. að reyna
    að finna sér ný verkefni þegar líður á næsta ár, ná kannski loksins að
    koma sér út úr erfiðu verkefni sem tekið hefur langan tíma að klára?
    Auðvitað hefur þetta bein áhrif á það verkefnaframboð. Og hver er yfir
    höfuð framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar hvað þessi mál varðar? Hvernig sjáum
    við fyrir okkur að markaðurinn muni rétta úr kútnum aftur? Hvernig sjáum
    við fyrir okkur að þessi risastóri lager af íbúðum fari einhvern veginn
    út?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég sé að tími minn er að klárast. Stóra málið
    við þetta frumvarp er auðvitað að það er ekki fyrr búið að leggja það fram
    fyrr en það er búið að boða breytingar á því, að sennilega muni flest af
    þessu breytast. Við erum því að einhverju leyti enn þá í nokkru myrkri
    hvað þetta varðar. En ég vil hvetja ríkisstjórnina til þess, þegar kemur
    að fjárlögum, fjárlagafrumvarpinu og þessu frumvarpi, að endurhugsa stóru
    strokurnar; minni hækkanir, minni skattlagningu á atvinnulíf og heimili.
    Göngum lengra í aðhaldinu. Höfum það bak við eyrað að þegar verið er að
    óska eftir því að bankar og baðlón og hinn og þessi úti í samfélaginu taki
    hluti á kassann þá gengur þessi ríkisstjórn ekki undir það fordæmi sjálf,
    hún er að hækka gjöld eins og hún mögulega getur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>