<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:18:17" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:20:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:18:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir yfirferðina. Ég
    verð að fá að taka undir sitthvað af því sem kom fram í máli hans, ekki
    síst þegar vikið er að því að nú koma fram fjárlög og yfirlýsingar þess
    efnis, og upplýsingar í bandormi og í öðrum gögnum, að hér standi til að
    fara í víðtækar gjaldskrárhækkanir á línuna sem nema 5,2%, þ.e. í takt við
    ársverðbólguna eins og hún var. Það er pólitísk ákvörðun að gera það þegar
    margir aðrir hafa bent á að æskilegra sé í þessu árferði að senda allt
    önnur skilaboð, með því að fara frekar í 2,5% hækkanir o.s.frv. Síðan er,
    eins og hv. þingmaður bendir á, ekki fyrr búið að tilkynna um þetta en
    farið er að draga í land og farið að vísa til þess að nú standi yfir
    þreifingar milli aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda og að í þeim samtölum
    sé alveg eins líklegt að menn geri ákveðnar breytingar á þessari 5,2%
    hækkun. Engu að síður er ákveðinn skaði skeður, ef svo má segja, þ.e. það
    er búið að boða þessar hækkanir, leggja þær fram og bera þær á borð fyrir
    alla alþýðu manna og viðeigandi aðila markaðarins sem taka slíkar
    upplýsingar og bregðast við þeim. Skuldabréfamarkaðurinn tekur þetta inn
    sem upplýsingar frá stjórnvöldum og menn fara að reikna þetta inn í allt
    mögulegt á þeim markaði. Þar eru undirliggjandi mælikvarðar eins og
    verðbólguvæntingar sem síðan spila með verðbólgunni. Ég velti fyrir mér
    hvert mat hv. þingmanns er á þessum vinnubrögðum, hvort þetta sé endilega,
    ja, ég meina — ef menn fara í þá átt að lokum að draga þetta til baka, til
    hvers var þá farið af stað? Og hvað erum við þá eiginlega að gera hérna í
    grunninn? Hefur hv. þingmaður einhverja skoðun á því?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>