<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:20:33" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:22:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:20:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Þetta er kannski akkúrat
    kjarni málsins. Þetta er mjög sérstakt. Ríkisstjórnin fer fram með þetta
    háa hlutfall, 5,2%, sem vekur auðvitað mikla athygli og auðvitað er horft
    til þess. Eins og ég fór yfir í ræðunni, og ætla ekki að fara að endurtaka
    mig, var þetta nákvæmlega það sem leiðsögn Seðlabankans frá því í ágúst
    gekk út á. Opinberar gjaldahækkanir hafa samkvæmt orðum Seðlabankans verið
    leiðandi þáttur í verðbólguþróun hér innan lands. Þess vegna kom fólki
    auðvitað dálítið á óvart að sjá hversu hátt hlutfall hækkunin er. Og eins
    og hv. þingmaður rakti ágætlega og kom fram í minni ræðu líka þá er ekki
    síður sérstakt að sjá að forsætisráðherra boðar hálfpartinn að þetta sé
    algerlega uppi á borðum í kjaraviðræðum þar sem kveður aðeins við nýjan
    tón. Hæstv. ráðherra hefur nú verið mjög treg til að opna á að það sé
    mikið í boði af hálfu ríkisvaldsins til að liðka fyrir kjarasamningum en
    það kveður við nýjan tón þar. Þetta verður þá einhvers konar spil á því
    borði og þetta er allt saman mjög sérstakt, eins og ég sagði, og kannski
    partur af einhverri svolítið skrýtinni skák. 5,2% hækkunin er vissulega
    rökstudd hér af mikilli ákefð og maður verður að segja að það er mjög
    sérstakt að standa í svona umræðu ef við ætlum síðan kannski að nokkrum
    vikum liðnum að vera með einhverja allt aðra tölu og allt aðra forsendu í
    fjárlögum fyrir næsta ár. Þetta er því mjög sérstakt og ég tek undir með
    hv. þingmanni að það er auðvitað búið að senda skilaboðin út. Þetta er
    búið að hafa þessi áhrif. Ég held að þetta hafi verið einn af stærstu
    þáttunum í því hvernig viðbrögðin við fjárlagafrumvarpinu voru. Ég held að
    það sé alveg klárt að þau voru ekki í samræmi við þær væntingar sem
    ríkisstjórnin hafði.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>