<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:22:38" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:24:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:22:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Maður
    getur haldið áfram að velta fyrir sér ýmsum þáttum sem eru undir. Auðvitað
    er allur ríkisreksturinn í heild sinni í raun og veru undir og þessar
    gjaldskrárhækkanir sýna pólitíska forgangsröðun og pólitíska sýn, varpa
    ljósi á það í hvaða átt menn stefna. Ég vakti athygli á því í umfjöllun um
    fjárlög, í samræðu við hæstv. háskóla- og menningarmálaráðherra, að mér
    fyndist það ekki beint réttu skilaboðin að fara t.d. fram með fulla 5,2%
    hækkun gagnvart útvarpsgjaldinu þar sem menn eru ár frá ári látnir borga
    meira í það. Og svo koma ýmis viðbótarframlög frá ríkisvaldinu og auka
    milljarðaskuldbindingar sem ríkisvaldið tekur á sig fyrir Ríkisútvarpið á
    sama tíma og einkamiðlar ýmist deyja drottni sínum eða draga verulega
    saman seglin, jafnvel þannig að það hreinlega sér á menningunni eftir
    slíka atburði eins og orðið hafa á síðustu mánuðum. Það er eftirtektarvert
    að í því árferði sjái menn ekki að nú væri kannski eðlilegt að segja við
    Ríkisútvarpið, sem er með þessa tæplega 300 starfsmenn í vinnu: Nú erum
    við sem samfélag að draga saman seglin á ýmsum sviðum, herða sultarólina.
    En þetta nær ekki þangað. Það kemur greinilega ekki til greina. Það er
    greinilega, eins og ljóst er orðið á síðustu dögum, mikil viðkvæmni fyrir
    allri umræðu um Ríkisútvarpið í þessum sal og sérstaklega af hálfu
    ríkisstjórnarinnar. Það má helst ekki anda á fyrirbærið. Maður sér að það
    er alveg skýrt haldið áfram með að hrófla ekki við því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hafandi starfað í fjölmiðlum og þekkjandi þennan markað þá veit ég
    að fjölmiðlar geta hagrætt. Þeir geta alveg hagrætt. <ns:bjalla/> Það
    hefur sýnt sig, sannarlega. En ekki Ríkisútvarpið. Finnst hv. þingmanni
    það ekki skjóta skökku við, ekki síst á þessum síðustu og verstu
    tímum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>