<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:25:04" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:27:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:25:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég get svo sannarlega tekið
    undir það. Það á svo sem við um Ríkisútvarpið, held ég, eins og í sjálfu
    sér margs konar starfsemi hins opinbera, að við þurfum að ganga dálítið
    öll í takt. Það er vont að senda þau skilaboð út í þjóðfélagið, til
    fyrirtækja og inn í alls konar starfsemi, að nú þurfi að herða að. Þegar
    tilfinningin er kannski sú að sjálft ríkisvaldið, stofnanirnar, sé að fara
    um sjálft sig mýkri höndum, skulum við orða það til að taka mjög
    diplómatískt til orða. Í þessu samhengi má t.d. minna á eitt sem ég hef
    mikið saknað hjá þessari hæstv. ríkisstjórn þegar kemur að þessum málum,
    efnahagsmálunum og ríkisfjármálunum, sem eru afdrif hagræðingartillagnanna
    ágætu sem voru unnar í byrjun kjörtímabilsins með pomp og prakt. Það er
    margt gott í þeim tillögum, svo það sé sagt. Afskaplega lítið af þeim
    hefur komið til framkvæmda. Það verður að segjast. Hagræðingar- og
    aðhaldskafli þessara fjárlaga er miklu meira þeim megin að hann gengur út
    á tilfærslur milli ára. Það er verið að draga úr framkvæmdum hér og þar en
    það vantar, finnst mér, að það sé aðeins verið að ýta til baka, takast á
    við kerfið. Við sjáum t.d. að nýr meiri hluti í Reykjavíkurborg hefur
    farið í slíkar aðgerðir. Þær eru vitaskuld ekki skemmtilegar, þær eru
    afskaplega sársaukafullar og útheimta erfiðar ákvarðanir. En með því erum
    við kannski líka að senda þau skilaboð að við þurfum að byrja á okkur. Við
    þurfum að taka til hér og vera óhrædd við allt slíkt. Við getum ekki
    annars krafist þess að allir hinir geri slíkt hið sama ef það á eitthvað
    annað að gilda um hið opinbera. Þetta snýst oft svolítið um skilaboðin,
    signalið, og ég tek Ríkisútvarpið alls ekki út fyrir sviga í þeim
    efnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>