<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:27:06" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:29:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:27:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég verð nú að byrja á að þakka þingmanninum
    fyrir ræðuna sína. Hún var mjög áhugaverð. Mig langar kannski aðeins að
    ræða við hann um skatta. Ég er ekkert hrædd við þetta orð, skattar. Fyrir
    mér eru skattar auðvitað bara tekjur ríkissjóðs til að borga fyrir
    samneysluna, til að borga fyrir heilbrigðiskerfið, menntakerfið, innviði
    landsins, þannig að mér finnst ekkert óþægilegt að nota orðið skattar,
    skattar, skattar, mér finnst þetta bara alls ekki óþægilegt. En ég vil fá
    að vita í hvað skattarnir mínir fara og ég vil að þeim sé ráðstafað vel.
    Nú er það þannig að halli ríkissjóðs jókst um 860 milljarða frá 2019, um
    115 milljarða á hverju einasta ári og staðreyndin er sú að í gegnum þessi
    áföll sem við lentum í, Covid, jarðeldana á Reykjanesi og fleira, jukust
    ríkisútgjöld gríðarlega og þau voru fjármögnuð með lántökum og þær
    lántökur erum við að greiða núna sem veldur því að við erum að borga núna
    168 milljarða í vaxtagjöld. Ég hef þess vegna verið talsmaður þess og styð
    þá leið að við förum blandaða leið af hagræðingu, sem er upp á 44
    milljarða samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, og svo nýjum tekjum. Ég gat ekki
    heyrt það í ræðu þingmannsins hvar hann getur hugsað sér að taka þessar
    nýju tekjur. Ég veit að þeir sem sömdu fjárlagafrumvarpið horfðu á þá
    geira þar sem arðsemin er mest, til að mynda hjá fjármálafyrirtækjunum.
    Hagnaður þeirra hefur verið langt umfram þeirra eigin væntingar. Og ég
    bara spyr: Ef við hugsum þetta þannig: Ríkissjóður er sameign þjóðarinnar
    og ef við ættum að reyna að vinna að heilbrigði hans, hvert myndi hv.
    þingmaður leita til þess að auka heilbrigði hans ef ekki má horfa í
    fjármálafyrirtæki og baðlón?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>