<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:29:11" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:31:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:29:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrirspurnina. Það er gaman að
    heyra að hv. þingmaður er ekki hrædd við orðið skattar og ég held að það
    sé í sjálfu sér enginn hér í þessum sal. Ég held að við deilum öll þeirri
    sýn, þó að það sé örugglega með mismunandi blæbrigðum og mismunandi
    pólitískum skoðunum, að við byggjum á skattheimtu. Mín pólitísku viðhorf
    eru þau að hún eigi að vera hófleg og við megum aldrei líta fram hjá
    áhrifum hennar. Ef skattar eru svona mikil snilld og töfralausn væri
    væntanlega lítill vandi að hækka þá nánast út í hið óendanlega til að afla
    ríkissjóði tekna til að gera allt sem okkur dettur í hug. Ég held að við
    hljótum líka að deila þeirri sýn að slíkt er auðvitað aldrei raunhæft. Við
    þurfum alltaf að vera að finna eitthvert jafnvægi og það er kannski þess
    vegna sem ég geri og hef gert athugasemdir við hvað mér finnst þetta
    fjárlagafrumvarp fara t.d. hart í ferðaþjónustuna, tekur einn tiltekinn
    geira. Það væri fróðlegt að heyra viðhorf þingmannsins til þess hvort
    henni finnist þeim byrðum alveg eðlilega skipt. Það eru ekki bara baðlón
    sem lenda þarna undir heldur ferðaþjónustugeirinn í heild sinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður nefndi, eins og margir stjórnarliðar hafa gert,
    þessa tölu, 850 milljarða rúmlega í halla. Við þekkjum öll ástæðurnar.
    Þetta var tímabil ótrúlegra ytri áfalla, hvort sem það var fall WOW air,
    Covid eða jarðeldar, og auðvitað er það þannig að þegar svona óvæntar
    neyðaraðstæður koma upp er erfitt að setjast niður og skattleggja þjóðina
    til þess að glíma við það. Þá reynir á það hvernig ríkissjóður er settur
    og sem betur fer vorum við búin að standa okkur hvað það varðar afskaplega
    vel. Ég held að við hljótum öll að geta verið sammála því. Frá árunum á
    undan, 2012 eða 2013, hvar sem við viljum setja það nákvæmlega niður, fram
    að þessum tíma hafði ríkissjóður verið rekinn mjög vel og í mörgum
    tilvikum réttu megin við núllið. Við áttum fyrir þessu en auðvitað þurfti
    að taka einhver lán til þess að bjarga þessu, koma okkur í gegnum þetta.
    En ég held að í einhvers konar samhengi hljótum við að horfa á þetta
    tímabil þannig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>