<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:31:40" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:33:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:31:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Taka
    einhver lán, held ég að sé mjög vægt til orða tekið, af því að þetta voru
    gríðarlegar lántökur. En mig langar að ræða hérna ferðaþjónustuna eins og
    hv. þingmaður skorar á mig að gera. Ég heyrði það í ræðu hans áðan að hann
    skildi ekki þá röksemd að baðlón yrðu undanskilin þessum skattafslætti,
    færu bara í almenna virðisaukaskattsþrepið, yrðu ekki í undanþáguþrepinu.
    Honum fannst það eitthvað sérkennilegt, ef ég skildi hann rétt. Þar er ég
    honum bara hjartanlega ósammála því að mín sýn er sú að ferðaþjónustan sé
    ein mest gjaldeyrisskapandi atvinnugrein landsins. Hún er stór og stöndug
    og ég er gríðarlega stolt af ferðaþjónustunni og hvernig hún hefur vaxið í
    gegnum árin og skapað fjölbreytt störf. Ég á bara erfitt með að réttlæta
    fyrir mér af hverju hún ætti að vera í undanþáguþrepinu. Sveitarfélag sem
    er að byggja leikskóla borgar 24% virðisaukaskatt á meðan baðlón borga
    bara 11%. Þannig að við verðum kannski að horfa á þetta í stærra samhengi.
    Ég hvet þingmanninn til þess að horfa á ferðaþjónustuna sem stóra og
    stönduga grein. Ég horfi á hana þannig og tel að hún geti lagt til
    samfélagsins eins og aðrar atvinnugreinar, að hún sé bara komin á það
    kalíber. Þetta er ekki hobbí. Þetta er bara alvöru atvinnugrein sem getur
    lagt til samfélagsins eins og aðrar og hjálpað okkur í gegnum þessar
    erfiðu aðstæður sem við erum í. Ég fer ekkert undan því að það urðu erfið
    efnahagsleg áföll á síðasta kjörtímabili. En við erum svolítið að borga
    fyrir það núna og þess vegna spyr ég þingmanninn í seinna andsvari hvort
    hann sé ekki sammála því að það sé heppilegast að fara blandaða leið
    tekjuöflunar og hagræðingar eins og gert er í þessu
    fjárlagafrumvarpi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>