<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:33:54" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:36:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:33:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég veit nú
    ekki hvort þetta á að teljast til einhvers konar tíðinda eða boða eitthvað
    nýtt hér af hálfu stjórnarliða en ég gat ekki skilið ræðu hv. þingmanns
    andsvar hv. þingmanns öðruvísi en að hún vildi sjá alla ferðaþjónustuna
    eins og hún leggur sig fara úr 11% þrepi upp í 24% þrep. Eins og ég rakti
    í minni ræðu er ferðaþjónustan mjög áberandi í þessu undanþáguákvæði
    virðisaukaskattslaga. Þarna er undir hótel- og gististarfsemi. Þarna er
    undir akstur. Þarna er undir leiðsögn. Þarna er undir í raun og veru
    hryggjarstykkið í ferðaþjónustunni. Aftur spyr ég: Hvers vegna ætli það
    sé? Ætli það sé bara einhvern veginn út í loftið? Ætli við höfum bara
    ákveðið svona að gamni okkar að setja ferðaþjónustuna í 11% þrep? Nei, það
    er vegna þess að við erum í samkeppni þegar kemur að ferðaþjónustunni við
    önnur ferðamannalönd. Ef við ætlum bara sisvona, ef ég skildi hv. þingmann
    rétt, ég gat ekki skilið hana öðruvísi en svo að henni þættu rök fyrir því
    að fara með alla ferðaþjónustuna upp í 24% — þá værum við í raun og veru
    að gera Ísland ósamkeppnishæft sem því nemur. Þetta er kannski það sem ég
    var að tala um áðan, þegar við ræðum um skatta, að það er ekki enginn á
    móti sköttum hér eða kategórískt andsnúinn þeim en við þurfum alltaf að
    velta fyrir okkur hver áhrifin af þeim eru. Að hækka ferðaþjónustuna
    sisvona úr 11% í 25% þýðir að Ísland yrði miklu dýrara fyrir vikið og
    myndi sennilega verðleggja okkur út af markaðnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins varðandi lántökur og stöðu ríkissjóðs á árunum 2019–2024 þá
    ítreka ég að þetta voru neyðaraðstæður sem komu upp trekk í trekk. Það má
    líka velta því upp, ef við viljum vera að spóla í sagnfræði, hvort
    Samfylkingin hefði viljað leggja fram nýja skatta fyrir 850 milljarða
    akkúrat á meðan við stóðum í þessum hremmingum. Ég heyrði alla vega
    flokkinn ekki tala á þeim nótum á sínum tíma. Varðandi aðhaldið þá væri nú
    kannski fyrsta skrefið fyrir ríkisstjórnina <ns:bjalla/> að nýta þann
    ágæta lista sem kom fram af hagræðingartillögum. Þar eru mörg tækifæri sem
    mætti nýta <ns:bjalla/> og kæmu sér vel fyrir ríkissjóð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>