<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:36:21" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:51:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:36:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Frumvarpið sem við ræðum hér er fyrst og fremst
    skattahækkunarpakki ríkisstjórnarinnar, sem á að brúa hallarekstur
    ríkissjóðs. Fyrir mér er þetta það frumvarp sem sýnir endanlega að
    ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið. Í því ljósi held ég að við verðum
    að setja þetta í samhengi við það sem ríkisstjórnin er að gera.
    Ríkisstjórnin er að leggja skatta á heimili landsins þvert á gefin loforð.
    Það er komið í ljós. En metnaðarleysið í þessum fjárlögum og þessum
    bandormi er slíkt að ég held að fólk átti sig ekki á því. Þess vegna vil
    ég setja þetta í samhengi. Ríkisstjórnin hefði getað sleppt því alfarið að
    hækka skatta á fólk og fyrirtæki í landinu, og þar með staðið við loforð
    sitt, með því einu að draga úr útgjöldum um 1%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við setjum þetta í samhengi við bókhald heimilis sem er með
    útgjöld upp á 500.000 kr. á mánuði þá erum við að tala um u.þ.b. 5.000 kr.
    Umrætt heimili hefði þurft að draga úr útgjöldum um 5.000 kr. á mánuði.
    Heimilið hefði haft það val að forgangsraða betur, finna út úr því, eða
    tala við einhvern vin og segja: Heyrðu, ert þú til í að borga fyrir mig,
    ertu til í að gefa mér, 5.000 kall á mánuði? Myndu mörg heimili gera það,
    biðja vin sinn um að borga 5.000 kall á mánuði svo að viðkomandi þyrftu
    ekki að taka til hjá sjálfum sér? Væru það mörg heimili sem myndu gera
    það? Nei. Ríkisstjórnin gerði það. Það er það sem ríkisstjórnin er að
    gera. Hún er ekki að taka til heima hjá sér og hún er ekki að taka til í
    útgjöldunum og þetta er stærðargráðan. Þetta er stærðargráðan sem þessi
    ríkisstjórn treystir sér ekki í, 1% gegn því að standa við
    kosningaloforðin. Ef ríkisstjórnin hefði viljað sýna enn þá meiri metnað
    hefði hún getað sleppt því að auka útgjöld milli ára. Ríkisstjórnin segist
    ekki vera að auka útgjöld af því að hún vill alltaf tala um hlutföll, gott
    og vel. En ef henni væri alvara með að taka til í ríkisrekstrinum ætti hún
    að sýna það í verki með því að hækka ekki útgjöld. Umrætt heimili sér það
    sennilega ekki fyrir sér að hækka útgjöld á næsta ári. Heimilin lifa í
    raunheimum. Ætti þetta sama heimili að stefna að því að auka útgjöld upp í
    505.000 kr. og bara lifa í voninni af því að það ætlar sér að ná í meiri
    tekjur á næsta ári? Væri það hugsunarháttur heimilanna? Við munum
    örugglega fá meiri tekjur þannig að ég ætla bara að hækka útgjöldin, en
    hlutfallslega ætla ég ekkert að hækka útgjöldin. Þetta sama heimili er
    rosalega skuldsett og það sem ríkið er að gera er að auka við
    skuldir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ráðherrar ríkisstjórnarinnar koma fram í viðtölum og segjast ekki
    vera að auka við skuldir. Af hverju? Jú, út af verðbólgunni sem þau bjuggu
    til sjálf. Þau eru með skýringar á því af hverju þau eru að auka við
    skuldir. Það eru í raun og veru ekki skuldir, það er bara skýring á því af
    hverju skuldirnar eru að hækka. Ef ríkisstjórnin hefði haft virkilegan
    metnað hefði hún auðvitað dregið enn meira úr útgjöldum. Það sem þessi
    ríkisstjórn talar um sem aðhald er fyrst og fremst frestun verkefna og
    vannýttar fjárheimildir. Það er þetta aðhald sem þessi ríkisstjórn er að
    tala um. Á meðan þau eru að auka útgjöld en ekki draga úr þeim þá er ekki
    hægt að tala með sama hætti um aðhald. Af hverju? Þá er þetta bara
    forgangsröðun. Þau eru að forgangsraða með þessum hætti. Þau ætla að
    fresta verkefnum. Þau ætla ekki að draga úr útgjöldum. Þau segjast ætla að
    fara í erfið verkefni en þau eru ekki að fara í erfiðu verkefnin. Það sést
    klárlega í þessu frumvarpi. Ef ríkisstjórnin hefði viljað skila
    hallalausum fjárlögum og standa við kosningaloforðin þá værum við kannski
    að tala um 2–3,5%, eftir því hvort þau vilja hækka útgjöld á milli ára eða
    ekki. Hvaða fyrirtæki á þessu landi sem væri yfirskuldsett myndi ekki
    draga úr sínum útgjöldum um 3%? Ekkert fyrirtæki á landinu myndi gera það.
    Það myndi enginn banki, bankarnir fá reyndar líka að finna fyrir því, taka
    það í mál hjá fyrirtæki sem væri yfirskuldsett að það ætlaði ekki einu
    sinni að minnka útgjöld um 3% þegar tækifærin eru alls staðar til þess.
    Nei, þessi ríkisstjórn ákvað að svíkja öll kosningaloforðin og það var
    næstum því — ég veit ekki hvort maður á að gráta eða hlæja en hæstv.
    fjármálaráðherra kom hér áðan til að svara fyrir það af hverju hann væri
    að svíkja kosningaloforðin. Hann sagði: Það var bara eytt svo miklu hér á
    síðasta kjörtímabili. Bíddu, fyrirgefðu, það vita það allir. Þið gáfuð
    samt þessi loforð. Þið gáfuð loforðin um að þið ætluðuð ekki að hækka
    skatta. Þið vissuð alveg að hverju þið voruð að ganga og fólkið kaus ykkur
    út á það. Við erum að tala um 3% og þið væruð með hallalaus fjárlög, þið
    mynduð ekki auka útgjöld ríkissjóðs og ekki hækka skatta. Er þetta til of
    mikils ætlast af ríkissjóði? Hvers lags metnaðarleysi er þetta eiginlega
    ef ríkisstjórnin treystir sér ekki í meira aðhald?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er það frumvarp sem sýnir mér að þessi ríkisstjórn á að fara
    frá. Þessi ríkisstjórn er að eyðileggja meira en hún er að græða, og þá er
    ég að tala um sár heimilanna. Svo bætist það ofan á að þetta eru ekki bara
    3% heldur veit ríkisstjórnin hver áhrifin verða og þetta stendur í
    frumvarpinu. Hún veit að þetta mun auka á verðbólguna. Hún veit hver
    áhrifin verða á heimilin. Þetta er miklu dýrara en 20 milljarðar að
    raunvirði sem þessi útgjöld eru að aukast um. Þetta eru 80 milljarðar
    milli ára, 20 milljarðar í raunútgjöld. Þetta er að hafa miklu meiri áhrif
    og ríkisstjórnin veit það. Reyndar eru til hagfræðingar í landinu sem
    segja að verðlagsuppfærsla krónutölugjalda hafi ekki áhrif; þeim var bent
    á það í fyrra að þau hefðu áhrif. Þetta ætti mögulega við ef ríkisstjórnin
    myndi ekki á sama tíma auka útgjöld. Þá gæti hún kannski borið því fyrir
    sig að krónutöluhækkanirnar væru ekki jafn slæmar. Það er ekki þannig.
    Ríkisstjórnin er að auka útgjöld á sama tíma. Af hverju ætti útkoman þá að
    verða önnur en síðast? Við munum öll hvað gerðist síðast. Verðbólgan fór
    upp og löngu seinna kom ríkisstjórnin og ætlaði að kenna olíuverði um,
    heimsmarkaðsverði á olíu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá vil ég líka minna á að þegar heimsmarkaðsverð á olíu fór að
    stíga upp voru flest lönd í heiminum sem ætluðu að lækka skatta á
    eldsneyti búin að því tveimur mánuðum á undan ríkisstjórninni.
    Ríkisstjórnin lofaði því að hún myndi grípa til aðgerða eftir páska í
    fyrra ef ástandið stefndi í að verða jafn slæmt og raun bar vitni. Það var
    áður en ríkisstjórnin lofaði þessu, áður en vandamálið í Hormússundi kom í
    ljós. Það var áður sem hún lofaði því. Svo kemur vandamálið upp og
    olíuverðið hækkar. Ríkisstjórnin kemur þá loksins eftir páska, eftir að
    hafa tekið sér tvo mánuði í að horfa á önnur lönd gera þetta, með
    eitthvað, ekki til að vinna á eigin ógöngum heldur sýndi hún allavega lit
    hvað þetta varðar; ekki hvað sínar eigin ákvarðanir varðar sem voru alveg
    hræðilegar fyrir heimilin. Eins og ríkisstjórnin sem hér var á undan — og
    ég var ekki ánægð með hana og ég held að sumir þar innanborðs hafi ekki
    einu sinni verið ánægðir enda hætti hún. En mig óraði ekki fyrir því að
    við gætum mögulega fengið verri ríkisstjórn. Það má þó alla vega segja um
    hina ríkisstjórnina að allt hafi stefnt í rétta átt. En hvað gerist? Þessi
    ríkisstjórn tekur við og klúðrar öllu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Árið 2025 fór þessi ríkisstjórn tugi milljarða fram úr í
    útgjaldaaukningu. Það dugði þeim ekki. Árið 2026 var mesta útgjaldaaukning
    milli ára sem nokkur ríkisstjórn hefur boðað fyrr eða síðar. Sama
    ríkisstjórn og er að segja heimilum landsins að hún sé að stunda aðhald.
    Þetta var 2026. Og hvað kemur í ljós núna? Áætlanir fyrir árið benda til
    þess að hallinn muni aukast um tugi milljóna. Þetta eru verk þessarar
    ríkisstjórnar, ekki þeirrar fyrri heldur þessarar. Hallinn mun aukast um
    tugi milljóna og ef einhver man eftir því þá var 0 kr. peppið í fyrra að
    ná stöðugleikareglu. Hvernig haldið þið að komið sé fyrir
    stöðugleikareglunni árið 2026? Haldið þið að hún sé að nást? Það var ekki
    miklu sem átti að muna. Nei, nú erum við að tala um að þessi ríkisstjórn
    er búin að auka hallann um tugi milljarða. Það stefnir alla vega í það
    miðað við áætlanir. Ég veit ekki hvort ríkisstjórnin hyggst gera eitthvað
    í því. Henni mun örugglega ekki detta aðhald í hug. Það munu sennilega
    verða auknir skattar á landsmenn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég á ekki mikinn tíma eftir en ég verð að koma aðeins inn á hverja
    og eina skattahækkun. Ég ætla að byrja á kílómetragjaldinu. Það er eitt af
    þeim atriðum þar sem ríkisstjórnin talar alltaf um fyrri ríkisstjórn. Ég
    vil minna á að fyrri ríkisstjórn keyrði þetta alla vega ekki í gegn. Þessi
    ríkisstjórn, sem er náttúrlega bara embættismannastjórn, keyrði allt í
    gegn sem embættismennirnir réttu þeim og ráðherrar í ríkisstjórninni koma
    hér í pontu og tala um kjark til að klára málin. Ég verð þá að gefa
    fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra það að hafa haft kjark til að stoppa
    embættismennina af með þetta frumvarp; það átti alla vega að vera tekið
    hlutlaust eins og lagt var upp með það áður. Ekkert land í heiminum hefur
    lagt þetta fram með álíka hætti. Við bentum ítrekað á þetta, við bentum á
    gallana. Og hlustaði ríkisstjórnin? Nei, ekki frekar en þegar bent var á
    hvaða áhrif það myndi hafa á krónutöluhækkanirnar í fyrra. Þá reyndum við
    að fá þau til að láta þetta taka gildi örlítið síðar. Nei, þau hlustuðu
    ekki á það. Í staðinn var þetta keyrt áfram og innleiðingin búin að vera í
    tómu rugli. Fólkið hjá Skattinum er alla vega að reyna sitt besta og
    bjarga miklu en við erum að fá í fangið hér langan lista til að leiðrétta
    þessi lög af því að þau eru ekki að virka. Ég mun þurfa að fara í aðra
    ræðu til að ræða þessa skatta sérstaklega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar að reyna að komast aðeins lengra. Bankaskatturinn —
    algjört skilningsleysi hjá fulltrúum ríkisstjórnarinnar. Þau tala hér
    samhengislaust um það hvað bankarnir græði, að það sé nóg til. Þetta er
    svo mikil móðgun við skattgreiðendur og heimili þessa lands að maður á
    eiginlega ekki til orð. Því er fleygt fram að bankarnir græði 90
    milljarða. Við erum búin að fara yfir það hverjir eru eigendur, það er
    ríkissjóður og það eru heimili landsins að mestu. En samhengislaust: Hver
    er arðsemi eigin fjár? Ég bara veit ekki hvort meiri hlutinn veit það.
    Arðsemi eigin fjár umfram stýrivexti er 4% hjá bönkunum. Þá langar mig að
    spyrja: Hvað telur þessi ríkisstjórn eðlilega ávöxtun? Í því umhverfi sem
    nú er í boði ríkisstjórnarinnar, hávaxtaumhverfi, heyrist mér að
    ríkisstjórnin sé að reyna að ýta öllum sem eiga fjármuni yfir í það að
    geyma þá bara inni á bankabók. Það fer ekki að verða gott að taka áhættu
    með peningana sína með þessa ríkisstjórn hér við borðið. Ég ætla svo að
    reyna að koma aðeins inn á ferðaþjónustuna. Sagan er sú með baðlónin að
    þau voru í 0% þrepi 2014. Það getur vel verið að það eigi að hækka
    eitthvað. En þá vil ég segja eitt: Það er ekki sérstök ívilnun að vera í
    lægra þrepi. Hér á landi eru tvö skattþrep og annaðhvort ertu í því neðra
    eða í því efra. Það er ekki ívilnun að vera í neðra skattþrepi. Það er
    ákvörðun að hér eru tvö skattþrep. Ríkisstjórnin þarf að hætta að tala um
    þetta sem ívilnun. Þá þarf hún að útskýra: Ætlið þið að flytja allt upp í
    24% þrepið? Eða hvað eruð þið að meina með ívilnun?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég kemst ekki lengra og óska eftir því að verða sett aftur á
    mælendaskrá því að ég hef hvergi nærri lokið máli mínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>