<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:51:45" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:53:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:51:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þingmaðurinn fór hér mikinn áðan í ræðu sinni
    og er varla hálfnuð, ef ég skildi hana rétt. Mig langaði aðeins að fá að
    bregðast við hennar ræðu. Það væri áhugavert að heyra hvaða stöðu hún
    ætlar að taka sér, hvort hún ætlar að taka stöðu með almenningi í þessu
    landi eða hvort hún ætlar að taka stöðu með fjármálafyrirtækjum. Það væri
    áhugavert að heyra það. En mig langar aðeins að ræða við hana um það sem
    hún eyddi kannski mestum tíma sínum í, þ.e. ríkisútgjöldin, sem hún telur
    að séu að aukast allt of mikið og að það sé ekki verið að taka nógu vel á
    hlutunum. En ríkisútgjöld eru að dragast saman um 1,1% samkvæmt þessum
    fjárlögum þannig að það væri ágætt ef hún myndi kannski fara aðeins betur
    ofan í það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði aðeins að taka upp við hana, af því að ég gat ekki
    annað heyrt en að það megi hvergi sækja tekjur. Það má bara hagræða og
    draga saman ríkisvaldið. Það má hvergi taka tekjur, ef ég skil hana rétt.
    Það má bara draga saman. En mig langar líka að nefna við hana: Er ekki
    allt öðruvísi að reka ríkissjóð sem er að reka hér samfélag en að reka
    fyrirtæki? Er ekki stór munur þar á?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>