<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:53:10" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:54:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:53:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Jú, það er stór munur á því að reka heimili, reka
    fyrirtæki eða að reka ríkissjóð. En grundvallarmálin eru þau sömu: Ef þú
    eyðir of miklu þarftu að draga úr útgjöldum. Og ég tala nú ekki um hver
    munurinn er, að ríkissjóður er pottþétt með meiri sóun en flest rekin
    fyrirtæki hér á landi. Þannig að tækifæri ríkissjóðs eru miklu meiri,
    fullyrði ég, í flestum tilfellum en tækifæri fyrirtækjanna. Svo er
    auðvitað alltaf verið að leggja manni orð í munn: að hvergi megi taka.
    Nei, ég sagði aldrei neitt um það. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hins vegar sagði ég að við værum í þeirri stöðu að við værum með
    ríkisstjórn sem lofaði því að hækka ekki skatta. Hún er að svíkja það. Ég
    hefði líka lofað því og ég hefði staðið við það. Það er talað um að draga
    saman um 1,1%. Nei, þið eruð að auka útgjöld um 80 milljarða milli ára.
    Raunútgjöld eru að aukast um 20 milljarða. Þetta 1,1% er jú vissulega
    hlutfall af vergri landsframleiðslu. <ns:bjalla/> Við eigum eftir að sjá
    það raungerast. En það breytir því ekki að þið eruð að auka útgjöld milli
    ára.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>