<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:54:27" skst="ArnaJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:55:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:54:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að halda áfram á þessum nótum við
    virðulegan þingmann og spyrja hana hvort ekki teljist ósanngjarnt að vera
    með þennan samanburð, af því að það er auðvitað þannig að þjóðin er að
    eldast. Okkur er að fjölga. Á ekki að taka það inn í þennan samanburð sem
    hún nefnir? </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það gleymist oft í þessu að landsmönnum er að fjölga og það eru
    auðvitað fleiri sem þurfa hjúkrunarrými og fleiri sem þurfa þjónustu frá
    ríkinu. Þegar hún er að tala um þennan samanburð gleymist það svolítið.
    Það er hagræðing upp á 44 milljarða í fjárlagafrumvarpinu og svo tekjuauki
    upp á 27 milljarða. Ég ætla að spyrja hana að því, ef hún tæki við þessu
    búi þar sem eru 866 milljarðar í hallarekstri frá 2019, eins og hér hefur
    komið fram — við erum að borga 168 milljarða í vaxtagjöld núna bara vegna
    þess að ríkisútgjöldin, sem komu vegna efnahagsáfalla sem hér urðu, voru
    tekin að láni og nú er sem sagt komið að skuldadögum — sér hún einhverja
    aðra leið en að fara bara í hreinan niðurskurð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>