<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:55:40" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:56:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:55:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Já, hin leiðin er auðvitað verðmætasköpun. Hin leiðin
    er að gefa atvinnulífinu súrefni. Ég svaraði því nú ekki áðan en ég er að
    taka stöðu með almenningi með því að vera ekki að skattpína þjóðina í
    drep. Það er ekkert alveg ósanngjarnt að vera að tala hér um hlutfall af
    vergri landsframleiðslu, ég get alveg skilið það. En þegar við erum með
    ríkissjóð sem er í þeirri stöðu sem er núna og ríkisstjórn sem segist vera
    að taka til, þá verð ég bara að benda á: Af hverju er ekki farin sú leið
    að draga meira úr ríkisútgjöldum og — við erum að tala um 1% og það hefði
    ekki þurft að hækka skatta á neinn. Finnst okkur það ósanngjörn krafa?
    Nei, þið eruð ekki að stunda aðhaldssöm fjárlög og aðhaldið upp á 44
    milljarða, það er forgangsröðun. Það er forgangsröðun ykkar að fresta
    framkvæmdum. Þetta er ekki aðhald, þetta er bara forgangsröðun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>