<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:57:01" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:58:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:57:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og biðst
    hálfpartinn afsökunar á að vera að koma í andsvar en þetta er eina leiðin
    til að taka þátt í umræðunni því að stjórnarþingmenn eru ekki á
    mælendaskrá. Ég er að mörgu leyti sammála hv. þingmanni og hér hafa
    stjórnarliðar farið í andsvör. Þetta er kannski leið mín til að blanda mér
    inn í þá umræðu. Annars myndi ég að sjálfsögðu kjósa að fara bara í
    andsvar við til að mynda hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur sem er formaður
    þeirrar nefndar sem tekur þetta frumvarp hér inn eftir þessa umræðu.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég ætlaði að spyrja út í bankaskattinn. Ég ætla að spyrja hv.
    þingmann hvort hún telji það að einhverju leyti mótsagnakennt að hér í
    sumar voru stjórnarliðar mikið að tala fyrir jáinu í
    Evrópusambandsumræðunni allri og hversu mikilvægt væri að ganga í
    Evrópusambandið vegna þess að það myndi auka samkeppnina, m.a. á
    fjármálamarkaði. Þegar horft er til þess að á Íslandi erum við með
    töluvert af aukasköttum á bankastarfsemi sérstaklega, og hér er verið að
    tala um að hækka <ns:bjalla/> þá enn frekar þannig að þeir séu töluvert
    hærri en þekkist annars staðar á Norðurlöndunum eða í öðrum Evrópulöndum,
    telur hv. þingmaður að sú aðgerð ríkisstjórnarflokkanna að hækka þetta sé
    <ns:bjalla/> mögulega til þess fallin að draga enn frekar úr hvata aðila
    til að koma inn á þennan markað?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="EÁs"> Forseti minnir hv. þingmann á að ræðutími
    er ein mínúta.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>