<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:58:39" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 17:59:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:58:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir
    fyrirspurnina. Ég er svo sammála. Ég er búin að vera að hugsa þetta. Þetta
    er svo undarlegt. Þetta passar ekki við vegferðina sem við vorum að fara í
    með Evrópusambandið, maður hélt að kannski gæti eitthvað gott komið út úr
    þeirri vegferð, til að mynda að þau væru þá sjálf ekki að skekkja
    samkeppnina sem þau töluðu um að þau vildu laga. Sértækir bankaskattar eru
    að verða þeir hæstu á byggðu bóli. Það er nefnilega svolítið fyndið líka
    að svo eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar alltaf að tala um að hagnaður
    bankanna sé svo mikill. Samt miðast þessi bankaskattur, sem mun hækka
    núna, við skuldir bankanna. Þannig að hljóð og mynd fara ekki saman,
    finnst mér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>