<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T17:59:45" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 18:00:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T17:59:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="2">
      <ns:málsheiti>breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þar sem hv. þingmaður
    situr í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar langar mig að
    hvetja nefndina til að skoða þennan lið sérstaklega. Hér í dag hefur verið
    vísað mikið í skýrslu frá viðskiptaráðuneytinu varðandi áhrifin af lækkun
    bankaskatts á sínum tíma og ég átta mig á að það er ein setning í
    fréttinni á vef Stjórnarráðsins sem gefur til kynna að bankaskatturinn
    hafi í raun ekki skilað sér nægilega vel til neytenda. En það eru til
    fleiri greiningar þannig að ég vil hvetja hv. þingmann til að beita sér
    fyrir því í nefndinni að það verði raunverulega skoðað hver möguleg áhrif
    hækkunar bankaskatts eru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ef ég man rétt svaraði hæstv. fjármála- og
    efnahagsráðherra því til, þegar hann var spurður um þetta við kynningu
    fjárlagafrumvarpsins, að það mætti alltaf eiga von á því að hækkun á
    skatti myndi fara út í verðlag. Ég ætla því að spyrja hv. þingmann: Telur
    hún svo vera?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>